Influensa.is
08.2.2010
Ríflegur helmingur þjóðarinnar orðinn ónæmur fyrir svínainflúensu A(H1N1)
Afar góð viðbrögð Íslendinga skila miklum árangri og hvatt er til þess að þeir, sem ekki hafa látið bólusetja sig, mæti nú til bólusetningar!Lesa nánar
21.12.2009
Farsóttafréttir eru komnar út
Á vef Landlæknisembættisins er komið út síðasta tölublað Farsóttafrétta á þessu ári. Í fréttabréfinu er að greint frá fjölda HIV-sýkinga á árinu 2009 og vaxandi fjölda fíkniefnaneytenda í hópi hinna sýktu. Þá er skýrt frá þróun svínainflúensunnar hér á landi, sem nú er í rénun, og áframhaldandi bólusetningum gegn henni.Lesa nánar
11.12.2009
Nýrri sendingu bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) dreift til heilsugæslustöðva eftir helgi
Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember, og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista.Lesa nánar
10.12.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa
Mikið hefur dregið úr inflúensunni. Í síðustu viku (viku 49) greindist samtals 101 einstaklingur með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar.Lesa nánar
01.12.2009
Röskun á bólusetningu gegn svínainflúensu
Ítrekað er að þeir einstaklingar sem áttu von á að komast í bólusetningu gegn svínainflúensu á næstu dögum munu ekki komast í bólusetningu fyrr en eftir 15. desember. Ástæðan er seinkun á afhendingu bóluefnisins.Lesa nánar
27.11.2009
Áætlanir um bólusetningu vegna inflúensunnar A(H1N1) raskast vegna tafa á afhendingu bóluefnis
Fyrirsjáanlegt er að gildandi áætlun um bólusetningu almennings gegn inflúensunni A(H1N1) raskast verulega vegna þess að minna berst til landsins af bóluefni en gert var ráð fyrir og afhending dregst.Lesa nánar
26.11.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa
Í síðustu viku (viku 47) greindust samtals 250 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, sem er áframhaldandi fækkun tilfella miðað við undarfarnar vikur (mynd 1). Tilfellum fækkaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.Lesa nánar
23.11.2009
Stökkbreytingar á svínainflúensuveirunni
Stökkbreytingum á svínainflúensuveirunni hefur verið lýst á nokkrum stöðum í heiminum þ. á m. í Noregi. Inflúensuveirur taka alltaf einhverjum minniháttar breytingum og búast má við að svínainflúensan geri það líka. Það er óljóst hvort veiran verði skæðari með þessum breytingum sem lýst hefur verið og ástæðulaust að óttast það að svo stöddu.Lesa nánar
20.11.2009
Stór sending af bóluefni væntanleg um helgina - Þriðjungur þjóðarinnar ónæmur gagnvart inflúensunni A(H1N1)
20.000 skammtar af bóluefni gegn inflúensunni A(H1N1) eru væntanlegir til landsins um helgina og þeim verður dreift strax til heilsugæslustöðva. Bólusetning almennings ætti því að geta hafist víðast hvar strax eftir helgi, eins og ráð var fyrir gert en nokkur óvissa ríkti um hvort hægt yrði að standa við tímaáætlanir vegna tafa á afhendingu bóluefnis frá framleiðanda ytra.Lesa nánar
12.11.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa
Í síðustu viku (viku 45) greindust samtals 797 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, en það eru töluvert færri en í vikunni á undan (mynd 1). Tifellum fækkaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni (mynd 2).Lesa nánar
11.11.2009
Farsóttafréttir eru komnar út
Á vef Landlæknisembættisins er komið út 10. – 11. tölublað Farsóttafrétta. Í fréttabréfinu er að þessu sinni greinargerð um þróun inflúensufaraldursins hér á landi, allt frá fyrstu tilfellum til loka síðustu viku.Lesa nánar
10.11.2009
Seinkun á afhendingu bóluefnis
Seinkun hefur orðið á afhendingu bóluefnis gegn svínainflúensu hingað til lands í þessari viku og auk þess kemur minna magn en gert hafði verið ráð fyrir. Af þessu leiðir að seinkun getur orðið á bólusetningu einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma sem ráðgerð hafði verið í þessari og næstu viku.Lesa nánar
09.11.2009
Inflúensa A(H1N1)v 2009 staðfest í svínum
Inflúensa A(H1N1)v 2009 hefur verið staðfest í svínum á einu svínabúi í Eyjafirði. Sýni sem voru tekin föstudaginn 6. nóvember voru send til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum þar sem inflúensan var staðfest. Til að hindra útbreiðslu smits til annarra búa hefur bann verið sett á flutning dýra frá búinu og sóttvarnir hertar.Lesa nánar
06.11.2009
Almenn bólusetning gegn inflúensu A(H1N1) hefst mánudaginn 23. nóvember
Landsmenn allir geta pantað tíma á heilsugæslustöðvum fyrir bólusetningu gegn inflúensu A(H1N1) frá og með mánudegi 16. nóvember. Viku síðar, mánudaginn 23. nóvember, verður byrjað að bólusetja þá sem fyrstir skráðu sig.Lesa nánar
30.10.2009
Útlit fyrir að almenn bólusetning við inflúensunni geti hafist í síðari hluta nóvember
Horfur eru á að unnt verði að hefja almenna bólusetningu við inflúensunni A(H1N1)v 2009 fyrr en gert var áður ráð fyrir, þ.e.a.s. í síðari hluta nóvember í stað desember. Ástæðan er sú að meira berst af bóluefni til landsins næstu daga og vikur en reiknað var með í upphaflegum áætlunum.Lesa nánar
30.10.2009
Hlutfallslega fleiri börn veikjast nú af inflúensu
Langflest inflúensutilfelli hérlendis, undanfarna daga og vikur, greinast hjá börnum á aldrinum 0-9 ára. Þetta er marktæk breyting frá því í júlí og ágúst, þegar flestir sem veiktust voru á aldrinum 15-30 ára.Lesa nánar
29.10.2009
Viðbúnaður á Landspítala færður á „virkjunarstig“ vegna álags af völdum inflúensunnar
Viðbúnaður á Landspítala var í dag færður á svokallað virkjunarstig, samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans, vegna aukins álags af völdum inflúensufaraldursins.Lesa nánar
29.10.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa
Í síðustu viku (viku 43) greindust samtals 1781 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, sem er nokkuð svipað og vikuna þar á undan, sjá mynd 1. Frá 29. júní – 25. október hafa alls 6105 einstaklingar greinst með inflúensulík einkenni.Lesa nánar
23.10.2009
Símaráðgjöf í inflúensufaraldri
Fjölgað hefur verið hjúkrunarfræðingum sem svara í síma Læknavaktarinnar, númer 1770, á kvöldin og um helgar vegna aukins álags sem rekja má til inflúensufaraldursins.Lesa nánar
22.10.2009
Tímapantanir frá og með deginum í dag
Heilsugæslustöðvar landsins taka frá og með deginum í dag, 22. október, við tímapöntunum frá sjúklingum með tilgreinda „undirliggjandi sjúkdóma“ og frá þunguðum konum vegna bólusetningar við inflúensunni A(H1N1)v 2009.Lesa nánar
22.10.2009
Bólusetning gegn árlegri inflúensu verndar ekki gegn svínainflúensu
Að gefnu tilefni vilja landlæknir og sóttvarnalæknir taka fram að bólusetning gegn árlegri inflúensu verndar ekki gegn svínainflúensu. Bólusetning gegn inflúensu, sem nú er auglýst í ýmsum fyrirtækjum og lyfjabúðum, er aðeins gegn árlegri inflúensu.Lesa nánar
21.10.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa
Inflúensan færist enn í aukana. Frá 29. júní – 18. október 2009 bárust samtals 4246 tilkynningar um inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfesta inflúensu samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Þar af voru 1964 karlar og 2282 konur.Lesa nánar
20.10.2009
Símaþjónusta vegna inflúensu
Ef upp koma veikindi sem benda til inflúensu má hringja á dagvinnutíma í heilsugæslustöðina á heimasvæði viðkomandi sjúklings. Eftir dagvinnutíma, frá kl.16:00 til 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar, er hægt að hringja ýmist í vaktþjónustu viðkomandi landshluta eða Læknavaktina í síma 1770. Ef upp koma bráð, alvarleg veikindi skal hringja í 112.Lesa nánar
19.10.2009
Dauðsfall af völdum inflúensunnar A(H1N1)v 2009
Átján ára fjölfötluð stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdum inflúensunnar A(H1N1)v 2009. Hún veiktist fyrir um 11 dögum og var lögð inn á spítalann síðastliðinn fimmtudag. Þetta er fyrsta dauðsfallið hérlendis af völdum inflúensunnar.Lesa nánar
16.10.2009
Bólusetning þungaðra kvenna og sjúklinga í forgangshópum hefst í byrjun nóvember
Stefnt er að því að bólusetja 75.000 manns gegn svínainflúensu til loka nóvember. Byrjað verður að bólusetja þungaðar konur og sjúklinga í forgangshópum í fyrstu viku nóvember. Almenn bólusetning hefst í nóvember.Lesa nánar
14.10.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í rafrænni sjúkraskrá
Inflúensan færist enn í aukana. Frá 29. júní – 11. október 2009 bárust samtals 2545 tilkynningar um inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfesta inflúensu samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Þar af voru 1184 karlar og 1361 konur.Lesa nánar
13.10.2009
Vísbendingar um að inflúensufaraldur A (H1N1)v 2009 sé að magnast
Undanfarnar tvær vikur hefur inflúensulíkum sjúkdómstilfellum fjölgað talsvert hérlendis, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Hátt hlutfall sýna frá þessum sjúklingum greinist með inflúensu A(H1N1)v á veirufræðideild Landspítalans sem bendir til þess að flest tilfellin séu af völdum inflúensunnar.Lesa nánar
08.10.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í rafrænni sjúkraskrá
Svo virðist sem inflúensan sé aftur að færast í aukana á höfuðborgarsvæðinu en samtímis dregur úr fjölda sýkinga á landsbyggðinni.Lesa nánar
02.10.2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi
Þann 27. september 2009 höfðu alls 214 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi, sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 115 karlar og 99 konur.Lesa nánar
25.9.2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi
Þann 20. september 2009 höfðu alls 199 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi, sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 107 karlar og 92 konur.Lesa nánar
18.9.2009
Farsóttafréttir eru komnar út
Farsóttafréttir eru komnar út á vef Landlæknisembættisins. Í fréttabréfinu er að þessu sinni eingöngu fjallað um heimsfaraldur inflúensu hér á landi, allt frá því fyrsti sjúklingurinn greindist hér með inflúensu af völdum veirunnar A(H1N1)v 2009 í maímánuði til þessa dags.Lesa nánar
17.9.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í Sögu sjúkraskrá
Frá 29. júní – 13. september 2009 voru skráð samtals 1264 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu í Sögu sjúkraskrá, þar af voru 570 karlar og 694 konur.Lesa nánar
17.9.2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi 13. september 2009
Þann 6. september 2009 höfðu alls 193 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi, sem staðfest voru á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 98 karlar og 85 konur.Lesa nánar
11.9.2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi 6. september 2009
Þann 6. september 2009 höfðu alls 176 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi, sem staðfest voru á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 96 karlar og 80 konur.Lesa nánar
11.9.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í Sögu sjúkraskrá
Frá 29. júní – 6. september 2009 voru skráð samtals 1078 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu í Sögu sjúkraskrá, þar af voru 492 karlar og 586 konur.Lesa nánar
04.9.2009
Nýjar leiðbeiningar um fjarvistir frá vinnu og skóla vegna veikinda af völdum inflúensu A(H1N1)v
Með hliðsjón af nýjum upplýsingum er einstaklingum sem taldir eru vera með sýkingu af völdum inflúensu A(H1N1)v ráðlagt að halda sig heima í tvo daga eftir að þeir verða hitalausir.Lesa nánar
04.9.2009
Stefnt að því að byrja að bólusetja gegn inflúensu A(H1N1)v í byrjun október
Sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að bóluefni gegn inflúensu A(H1N1)v berist til landsins um næstu mánaðamót og að í byrjun október verði unnt að byrja að bólusetja landsmenn gegn veikinni.Lesa nánar
03.9.2009
Inflúensulík einkenni og staðfest inflúensa A í Sögu sjúkraskrá
Frá 29. júní – 30. ágúst voru skráð samtals 795 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu A í Sögu sjúkraskrá, þar af eru 358 karlar og 437 konur. Flest tilfellin eru í aldurshópnum 15-34 ára.Lesa nánar
03.9.2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi 30. ágúst 2009
Þann 30. ágúst 2009 höfðu alls 168 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi, sem staðfest voru á veirufræðideild Landspítala. Þar af eru 92 karlar og 76 konur. Ekki er vitað um alvarleg veikindi af völdum inflúensu A(H1N1)v veirunnar hérlendis.Lesa nánar
26.8.2009
Inflúensulík einkenni og staðfest inflúensa A í Sögu sjúkraskrá
Frá 29. júní – 23. ágúst voru skrá samtals 684 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu A í Sögu sjúkraskrá, þar af eru 305 karlar og 379 konur.Lesa nánar
26.8.2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi 23. ágúst 2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(N1N1)v 23. ágúst 2009 Alls hafa greinst 162 tilfelli með inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi, sem staðfest er með sýnatöku samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala frá því í maí 2009.Lesa nánar
20.8.2009
Inflúensulík einkenni og staðfest inflúensa A úr Sögu sjúkraskrá
Skráning á inflúensulíkum einkennum og staðfestri inflúensu A fer fram í Sögu sjúkraskrá á öllum heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum landsins.Lesa nánar
19.8.2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(N1N1)v 19. ágúst 2009
Alls hafa greinst 142 tilfelli með staðfesta inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala frá því í maí 2009. Þar af eru 79 karlar og 63 konur.Lesa nánar
13.8.2009
Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 13. ágúst 2009
Alls hafa greinst 118 tilfelli með staðfesta sýkingu af völdum inflúensu A(H1N1)v veiru á Íslandi frá því í maí 2009.Lesa nánar
12.8.2009
Skólastarf með eðlilegum hætti, viðbragðsáætlun fyrir skóla í vinnslu
Allt skólastarf í landinu getur hafist með eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldur inflúensunnar A(H1N1)v. Þetta er tekið fram af gefnu tilefni því talsvert er um fyrirspurnir frá skólastjórnendum, foreldrafélögum og fleirum um möguleg áhrif inflúensufaraldursins á starfsemi skóla á komandi haustönn.Lesa nánar
10.8.2009
Tilfelli inflúensu A (H1N1)v orðin 101 á Íslandi
Alls hafa greinst 101 tilfelli með staðfesta sýkingu af völdum inflúensu A(H1N1)v veiru á Íslandi frá því í maí 2009. Þar af eru 55 karlar og 46 konur.Lesa nánar
07.8.2009
Staðfest inflúensa A (H1N1)v á Íslandi miðað við 7. ágúst 2009
Alls hafa greinst 72 tilfelli með staðfesta sýkinga af völdum inflúensu A(H1N1)v veiru á Íslandi frá því í maí 2009. Þar af eru 37 karlar og 35 konur. Ekki er vitað um alvarleg veikindi af völdum inflúensu A(H1N1)v veirunnar hérlendis.Lesa nánar
06.8.2009
Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 63 einstaklingum á Íslandi
Á síðustu tveimur sólarhringum var ný inflúensa A(H1N1)v staðfest hjá níu manns og heildarfjöldi staðfestra tilfella er því samtals 63.Lesa nánar
04.8.2009
Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 54 einstaklingum á Íslandi
Alls hafa verið staðfest þrjú tilfelli af nýrri inflúensu A(H1N1)v yfir verslunarmannahelgina og er því heildarfjöldi staðfestra tilfella samtals 54. Enginn hefur orðið alvarlega veikur.Lesa nánar
31.7.2009
51 staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1) hérlendis
Á síðastliðnum tveimur sólarhringum var ný inflúensa A(H1N1) staðfest hjá fimm einstaklingum og heildarfjöldi staðfestra tilfella því samtals 51, enginn er alvarlega veikur.Lesa nánar
29.7.2009
46 staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1) hérlendis
Greinst hafa 12 tilfelli inflúensunnar A(H1N1) hér á landi undanfarna tvo sólarhringa og þar með eru staðfest tilfelli orðin alls 46 á Íslandi frá því í maímánuði síðastliðnum.Lesa nánar
27.7.2009
Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 34 einstaklingum á Íslandi
Síðustu tvo sólarhringana hafa ellefu tilfelli verið staðfest á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1)v og hefur hún því greinst hjá samtals 34 einstaklingum frá því í maí sl.Lesa nánar
24.7.2009
Munum eftir inflúensunni – ráðleggingar um smitvarnir
Sóttvarnalæknir hefur, í samráði við ríkislögreglustjórann almannavarnadeild, gefið út bækling með ráðleggingum til almennings um smitvarnir gegn inflúensuveirunni A(H1N1)v. Þessi bæklingur er önnur útgáfa bæklings sem gefinn var út fyrr í júní.Lesa nánar
24.7.2009
Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 23 einstaklingum á Íslandi
Síðustu tvo sólarhringana hafa fimm tilfelli verið staðfest á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1)v og hefur hún því greinst hjá samtals 23 einstaklingum frá því í maí sl. Um er að ræða 19 ára gamlan bandarískan ferðamann sem kom til landsins 21. júlí sl., 32 ára gamla konu sem hafði umgengist smitaðan einstakling hér á landi, 25 ára gamla konu sem einnig var í nánum tengslum við smitaðan einstakling, 25 ára gamla konu sem hafði umgengist smitaðan einstakling hér á landi og 32 ára gamla konu sem kom frá Bandaríkjunum 16. júlí sl.Lesa nánar
22.7.2009
Átján manns hafa greinst á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v.
Síðasta sólarhringinn hafa greinst þrjú tilfelli á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1)v og hefur hún því greinst hjá samtals 18 manns frá því í maí sl. Um er að ræða 24 ára karlmann sem ekki hefur ferðast erlendis og ekki haft tengsl við ferðalanga.Lesa nánar
21.7.2009
Fimmtán tilfelli hafa greinst á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v.
Síðasta sólarhringinn hafa greinst fjögur tilfelli á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v og eru inflúensutilfellin því orðin 15 samtals frá því í maí sl. Um er að ræða tvær konur 24 og 33 ára sem ekki hafa ferðast erlendis og virðast því hafa smitast innanlandsLesa nánar
20.7.2009
Ellefu tilfelli hafa nú greinst á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v.
Frá því á föstudag 17.júlí 2009 hafa bæst við tvö tilfelli af nýju inflúensunni A(H1N1)v. Um er að ræða 19 ára konu annars vegar sem kom frá Mexíkó og veiktist eftir heimkomu og 35 ára konu sem kom frá Ástralíu sem einnig veiktist eftir heimkomu. Þær voru ekki með alvarleg einkenni og eru á batavegi.Lesa nánar
17.7.2009
Í dag var tilkynnt níunda tilfellið af nýju inflúensunni A(H1N1)v (svínainflúensu).
Um er að ræða þrítugan karlmann. Hann hefur ekki ferðast erlendis nýverið. Engin tengsl við þekkt tilfelli af nýju inflúensunni. Er á batavegi.Lesa nánar
17.7.2009
Á Íslandi hafa nú greinst átta tilfelli af nýju inflúensunni A(H1N1)v (svínainflúensu).
Síðdegis í gær, 16. júlí, greindist átta ára gömul stúlka með nýju inflúensuna. Hún kom til landsins frá Spáni 10. júlí sl. Hún veiktist þremur dögum síðar en sýni frá 14. júlí reyndist jákvætt fyrir inflúensu A(H1N1)v. Stúlkan er á batavegi.Lesa nánar
15.7.2009
Bóluefni og lyf gegn heimsfaraldri inflúensu
Í tilefni af opinberri umræðu um inflúensuna A(H1N1), og tilheyrandi bóluefni og bólusetningu hérlendis, er ástæða til að vekja athygli á eftirfarandi til skýringar og áréttingar:Lesa nánar
15.7.2009
Þrjú ný tilfelli inflúensu A (H1N1) greind á Íslandi
Staðfest eru þrjú ný tilfelli inflúensu A (H1N1) hérlendis og eru þau því alls orðin sjö talsins. Um er að ræða fólk á aldrinum 18-19 ára, karl og konu sem komu heim frá Ástralíu og konu sem kom frá Bandaríkjunum.Lesa nánar
03.7.2009
Farsóttafréttir eru komnar út
Á vef Landlæknisembættisins eru komnar út Farsóttafréttir, 6. til 7. tölublað árgangsins. Farsóttafréttir eru að þessu sinni helgaðar einu efni, nýju inflúensunni A(H1N1) á Íslandi. Gerð er grein fyrir fyrstu tilfellunum sem greinst hafa í landinu og viðbragðsáætlunum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjórans.Lesa nánar
03.7.2009
Munum eftir inflúensunni – ráðleggingar um smitvarnir
Sóttvarnalæknir hefur, í samráði við ríkislögreglustjórann almannavarnadeild, gefið út bækling með ráðleggingum til almennings um smitvarnir gegn inflúensuveirunni A(H1N1). Þessi bæklingur er önnur útgáfa bæklings sem gefinn var út fyrr í júní. Nú er áherslan á einkenni inflúensu.Lesa nánar
12.6.2009
Munum eftir inflúensunni – ráðleggingar til ferðalanga
Út er kominn fræðslubæklingur hjá sóttvarnalækni með ráðleggingum til ferðamanna um aðgát og varúðarráðstafanir vegna nýju inflúensunnar A(H1N1) sem nú berst um heiminn. Bæklingurinn er gefinn út í samstarfi við Almannavarnadeild ríkislögreglustjórans.Lesa nánar
12.6.2009
Fjórða inflúensutilfellið greint, hið fyrsta sem smitast innanlands
Fjórða tilfelli inflúensu A(H1N1) hefur greinst á Íslandi. Þar á í hlut kona á miðjum aldri og allt bendir til þess að hún hafi smitast af hjónum sem komu hingað frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn og greindust bæði með veikina. Þetta síðasta tilfelli má því rekja til smits hér innanlands.Lesa nánar
10.6.2009
Þriðja inflúensutilfellið greint á Íslandi
Þriðja tilfelli inflúensu A(H1N1) greindist á Íslandi í gærkvöld. Þar er um að ræða eiginkonu karlmannsins sem greindist með veikina í fyrradag og sagt var frá í tilkynningu sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar í gærmorgun.Lesa nánar
09.6.2009
Annað tilfelli inflúensu A(H1N1) staðfest á Íslandi
Sextugur karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur greinst með inflúensu A(H1N1) og er það annað tilfelli veikinnar sem staðfest er hér á landi. Hann er á batavegi. Fylgst er með fjölskyldu og fleirum sem viðkomandi hefur umgengist eftir heimkomuna en smit hjá öðrum hefur ekki verið staðfest.Lesa nánar
03.6.2009
Svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs ræddar á fundum um allt land
Fulltrúar sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hitta sóttvarnalækna, lögreglustjóra, forystumenn sveitarfélaga og heilbrigðisstarfsmenn á alls fimmtán fundum víðs vegar um landið núna í júní til að ræða svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs.Lesa nánar
25.5.2009
Inflúensa A(H1N1) ekki greind í sýnum frá sex einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast
Niðurstöður úr alls sex sýnum, sem tekin voru til rannsóknar síðastliðinn föstudag og laugardag frá einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast af inflúensu A(H1N1), sýna að þeir eru ekki sýktir af hinni nýju inflúensu.Lesa nánar
24.5.2009
Niðurstöður rannsókna á sýnum væntanlegar á morgun
Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á sýnum vegna gruns um sex tilfelli inflúensu A(H1N1) liggi fyrir á morgun, mánudag. Viðkomandi einstaklingar tilheyra fjölskyldu mannsins sem greindist með inflúensuna fyrir helgi. Enginn viðkomandi er alvarlega veikur.Lesa nánar
23.5.2009
Fyrsta tilfelli inflúensu A(H1N1) greint á Íslandi
Eitt tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur verið staðfest hér á landi og grunur leikur á að fjórir til viðbótar séu smitaðir. Sýni þar að lútandi verða send til rannsóknar. Viðkomandi tilfelli eru á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi.Lesa nánar
20.5.2009
Farsóttafréttir maímánaðar eru komnar út
Á vef Landlæknisembættisins er komið út maítölublað Farsóttafrétta. Í fréttabréfinu er samantekt um nýju inflúensuna A(H1N1) frá því fyrstu tilfelli hennar greindust fyrir tæpum mánuði til dagsins í dag.Lesa nánar
20.5.2009
Ríflega 10 þúsund staðfest tilfelli af inflúensu A(H1N1)
Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1) alls 10.215 í morgun í 42 ríkjum í heiminum (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).Lesa nánar
15.5.2009
Ekki varað lengur við ferðalögum til Mexíkó og dregið úr viðbúnaði í Leifsstöð
Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) alls 7.743 í morgun í 34 ríkjum í heiminum (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).Lesa nánar
13.5.2009
Meiri smithæfni en í „venjulegri“ inflúensu
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.935 í morgun í 31 ríki í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).Lesa nánar
11.5.2009
Rúmlega fimm þúsund staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) í heiminum
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.132 í morgun í 30 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).Lesa nánar
08.5.2009
Staðfestum tilfellum inflúensu A (H1N1) fjölgar nú hægar en áður
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.489 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 272 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).Lesa nánar
07.5.2009
Staðfestum inflúensutilfellum fjölgar mest í Bandaríkjunum
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.217 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 568 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).Lesa nánar
06.5.2009
Flest staðfest inflúensutilfelli í Evrópu eru á Spáni
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 1.652 í morgun í 22 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 380 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).Lesa nánar
05.5.2009
Flestir sem greinast með inflúensu A (H1N1) eru ungt fólk.
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 1.269 í morgun í 22 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).Lesa nánar
04.5.2009
Yfir 1.000 staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1)
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) - „svínainflúensunnar“ - voru í morgun alls 1.008 í nítján ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins.Lesa nánar
01.5.2009
Staðfest 481 svínainflúensutilfelli í 11 löndum
Staðfestum tilvikum svínainflúensu í heiminum fjölgar áfram. Þau voru alls 481 í morgun, þar af 312 í Mexíkó. Alls hafa þrettán látist úr veikinni þar af tólf í Mexíkó og einn í Bandaríkjunum. Þetta eru nýjustu upplýsingar Sóttvarnastofnunar Evrópu.Lesa nánar
30.4.2009
Hvernig á að verjast svínainflúensu?
Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir árétta að andlitsgrímur fyrir hinn almenna borgara gera lítið gagn til að verjast svínainflúensu.Lesa nánar
30.4.2009
Aukinn viðbúnaður – allt á áætlun – enginn smitaður
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin jók viðbúnaðarstig sitt í fimm í gærkvöld. Þetta þýðir meðal annars að aðildarþjóðir WHO eru beðnar um að virkja viðbúnaðaráætlanir sínar vegna svínainflúensunnar. Þessi breyting af hálfu WHO hefur engin áhrif hér á landi, enda viðbúnaðaráætlun þegar virk, og hér er enn unnið á hættustigi (stigi 4).Lesa nánar
29.4.2009
Aðgerðir hér á landi vegna svínainflúensu og staðfest tilfelli
Fréttatilkynning frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Staðan í dag 29.4. 2009: Í gær hækkaði WHO viðbúnaðarstig sitt yfir á stig 4 og hér á landi var í kjölfarið viðbúnaðarstigið fært af óvissustigi og yfir á hættustig.Lesa nánar
28.4.2009
Tilkynning frá sóttvarnalækni vegna svínainflúensu
Eins og áður hefur komið fram er ekki talin ástæða til að setja takmarkanir við ferðalög til útlanda á meðan ekki liggja fyrir nákvæmari upplýsingar um svínainflúensufaraldurinn í Mexíkó. Sóttvarnalænir mælist þó til að fólk ferðist ekki til Mexíkó nema brýna nauðsyn beri til.Lesa nánar
28.4.2009
Undirbúningur vegna svínainflúensu er samkvæmt áætlun
Boðað er til blaðamannafundar í dag, þriðjudag kl. 16.00, í björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð 14. Þar mun sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra greina frá stöðunni í dag og segja frá þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til hér á landi og erlendis.Lesa nánar
27.4.2009
Upplýsingar um svínainflúensu A(H1N1). Spurningar og svör
Hvað er svínainflúensa? Svínainflúensa er bráð sýking í öndunarvegum svína af völdum inflúensu A veiru. Dánartíðnin er lág í svínum og þau ná sér venjulega á 7–10 dögum frá upphafi veikinda.Lesa nánar
05.9.2008
Inflúensan veturinn 2008–2009. Bólusetningar hefjast bráðlega
Senn líður að þeim tíma þegar árleg inflúensubólusetning hefst, en miðað hefur verið við októberbyrjun. Gert er ráð fyrir að bóluefnin verði komin til landsins í lok september og geta heilbrigðisstofnanir og aðrir þar til bærir aðilar pantað bóluefni hjá dreifingaraðila nú þegar.Lesa nánar
01.4.2008
Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu undirrituð
Föstudaginn 28. mars sl. var Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu undirrituð í Björgunarmiðstöðinni við Skógarhlíð í Reykjavík. Til að fagna þessum áfanga komu saman þeir sem unnið hafa að gerð áætlunarinnar. Við gerð áætlunarinnar störfuðu um 30 vinnuhópar að verkefnisstjórn og stýrihópi meðtöldum, eða um 100 manns.Lesa nánar
17.1.2008
Inflúensutilfelli staðfest
Greinst hafa tvö tilfelli af inflúensu á veirufræðideild Landspítala, eitt tilfelli inflúensu B í desember og eitt af inflúensu A í janúar. Inflúensu A veiran er af H1 stofni. Endanleg greining hefur enn ekki fengist, en að öllum líkindum er þetta sami stofn (A/H1N1) og greinst hefur í Evrópu síðustu vikur.Lesa nánar
15.1.2008
Notkun veirulyfja í heimsfaraldri inflúensu
Í janúarhefti Læknablaðsins 2008 er birt yfirlitsgrein um veirulyf gegn inflúensu og leiðbeiningar gefnar um notkun þeirra í heimsfaraldri.Lesa nánar
21.12.2007
Tíu þúsund skammtar af bóluefni gegn fuglainflúensu (H5N1) eru nú komnir til landsins.
Sóttvarnalæknir hefur fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda fest kaup á 10.000 skömmtum af bóluefni gegn fuglainflúensu (H5N1) fyrir menn sem framleitt er af GlaxoSmithKline (GSK) og verður til taks ef veiran greinist hér á landi.Lesa nánar
11.12.2007
Æfing vegna heimsfaraldurs inflúensu
Í gær (10. desember 2007) var haldin æfing um viðbrögð við heimsfaraldri inflúensu í Samhæfingarstöð almannavarna við Skógarhlíð undir stjórn sóttvarnalæknis og Ríkislögreglustjóra. Tilgangur æfingarinnar var að æfa samskipti sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra við æðstu yfirstjórn landsins, sóttvarnalækna umdæma og svæða, lögreglustjóra, Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri.Lesa nánar
28.6.2007
Skýrsla um viðbragðsáætlanir vegna heimsfaraldurs inflúensu
Stöðuskýrslu um gerð viðbragðsáætlana vegna heimsfaraldurs inflúensu var nýverið skilað til nefndar sem í sitja ráðuneytisstjórar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og dóms- og kirkjumálaráðuneytisins ásamt skrifstofustjórum og sóttvarnalækni.Lesa nánar
29.5.2007
Kaup á árlegu inflúensubóluefni
Samningar um kaup á árlegu inflúensubóluefni voru undirritaðir 10. maí síðastliðinn af sóttvarnalækni fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda og fulltrúum GlaxoSmithKline (GSK) og Icepharma (Sanofi Pasteur MSD).Lesa nánar
08.5.2007
Bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu
Þann 4. maí 2007 undirritaði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra samning við GlaxoSmithKlein um kauptryggingu á 300.000 skömmtum af bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu. Samningur þessi er samhljóða samningi sem Danir hafa gert við lyfjafyrirtækið.Lesa nánar
13.11.2006
Gagnsemi inflúensubólusetningar
Í nýlegri frétt Morgunblaðsins (10. nóvember 2006) var haft eftir Tim Jefferson sem starfar hjá Cochrane-stofnuninni á Ítalíu að inflúensubólusetning hefði lítil sem engin áhrif hjá öldruðum.Lesa nánar
26.9.2006
Bólusetning gegn árlegri inflúensu
Sóttvarnalæknir hefur með dreifibréfi sent tilkynningu til lækna og hjúkrunarfræðinga um bólusetningar gegn inflúensu á haustinu 2006. Eins og endranær mælir sóttvarnalæknir með því að áhættuhópar njóti forgangs.Lesa nánar
07.4.2006
Leiðbeiningar til starfsmanna á alifuglabúum vegna skæðrar fuglaflensu
Vakin er athygli á nýjum leiðbeiningum frá sóttvarnalækni, Landbúnaðarstofnun, Umhverfisstofnun og Vinnueftirlitinu til starfsmanna á alifuglabúum og þeirra sem sjá um förgun fugla og annarra dýra sem sýkt eru af skæðri fuglainflúensu.Lesa nánar
03.3.2006
Leiðbeiningar til almennings og eigenda alifugla vegna fuglainflúensu A/H5N1
Sóttvarnalæknir hefur í samvinnu við Landbúnaðarstofnun og Umhverfisstofnun sent frá sér meðfylgjandi ráðleggingar varðandi fuglainflúensu. Ráðleggingar þessar verða uppfærðar þegar nýjar upplýsingar berast. Ráðleggingunum er beint annars vegar til almennings og hins vegar til eigenda alifugla.Lesa nánar
20.2.2006
Mótefni gegn skaðlausri fuglaflensuveiru hafa greinst í tveimur sýnum úr hænum
Mótefni hafa greinst gegn fuglaflensuveiru í tveimur sýnum sem tekin voru úr hænum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík. Samtals voru tekin 10 sýni úr hænum þar.Lesa nánar
17.2.2006
Spurningar og svör um fuglaflensu
Er óhætt að ferðast til landa þar sem fuglaflensa hefur verið staðfest? Í hvaða löndum hefur fuglaflensa komið upp?Lesa nánar
23.1.2006
Veirulyf gegn inflúensu
Töluvert hefur borist af fyrirspurnum frá almenningi um hvort ráðlegt sé að eiga birgðir af veirulyfjum (Tamiflu eða Relenza) í heimahúsum til eigin nota. Sóttvarnalæknir mælir ekki með því að almenningur verði sér út um slíkar birgðir.Lesa nánar
09.1.2006
Ráðleggingar til ferðamanna
Ekki er mælt með neinum ferðatakmörkunum eða bólusetningum ferðamanna vegna ferða til landa þar sem fuglainflúensa (H5N1) hefur komið upp.Lesa nánar
13.10.2005
Fuglainflúensa greinist í Tyrklandi. Ráðleggingar til ferðamanna.
Vegna fjölda fyrirspurna skal tekið fram að ekki er mælt með neinum ferðatakmörkunum eða bólusetningum vegna fuglainflúensu sem geisað hefur í AsíuríkjunumLesa nánar
23.12.2004
Inflúensan minnir á sig
Fyrsta inflúensutilfellið af A stofni greindist í Reykjavík þann 16. desember sl.Lesa nánar
06.10.2004
Innkallað inflúensubóluefni ekki á markaði á Íslandi
Bóluefnið Fluvirin frá Evans Vaccines Limited hefur verið innkallað af markaði vegna ófullnægjandi aðstæðna í framleiðslu.Lesa nánar
27.9.2004
Varnir gegn inflúensu
Enda þótt ekki hafi enn spurst til hinnar árlegu inflúensu er sá tími að hefjast sem hennar er að vænta en það venjulega tíminn frá nóvember til mars á hverju ári.Lesa nánar
Fjöldi tilfellaInflúensu
Fjöldi tilfella
Upplýsingarfyrir skóla
Upplýsingar
Til foreldra / forráðamanna
Til foreldra / forráðamanna
Upplýsingar fyrir almenning
Upplýsingar
- Upplýsingar um bólusetningu gegn inflúensu A(H1N1)v
- Leiðbeiningar fyrir heimilisfólk - Sýkingar af völdum nýrrar inflúensu A(H1N1)v veiru
- Upplýsingar um einkenni, smitleiðir og meðferð
- Umboð fyrir bólusetningu barna á heilsugæslustöð
- Spurningar og svör - Inflúensa A(H1N1)v
- Spurningar og svör - bóluefni og bólusetning
- Símaþjónusta
- Hvert á að leita?
- Hvernig má forðast smit?
- Ráðleggingar til ferðamanna
- Handþvottur
- Viðskiptavinir banka og sparisjóða
- Skepnuhald í inflúensufaraldri
Til heilbrigðisstarfsmanna
Til heilbrigðisstarfsmanna
- Leiðbeiningar um meðhöndlun bóluefnis
- Sýkingavarnir gegn inflúensu
- Meðferð einstaklinga
- Notkun veirulyfja
- Notkun veirulyfja - grein
- Atburðir - bólusetning
- Vöktun - tilkynningaskylda
- Skilgreining á tilfelli
- Starfsmenn með inflúensu eða grun um smit
- Tilmæli um sýnatökur
- Sýnatökuleiðbeiningar
- Gátlisti yfir búnað á inflúensumóttöku
- Notkun hlífðarbúnaðar
- Hlífðarbúnaður í sjúkraflutningum
- Grímur til varnar smiti
- Handþvottur með vatni og sápu
- Heimahjúkrun í heimsfaraldri
- Leiðbeiningar fyrir heilsugæsluna
- Framkvæmd sjúkraflutninga
- Þrif á sjúkrabílum og búnaði
- Ítarlegur spurningalisti
Upplýsingartil fyrirtækja
Upplýsingar