Fréttir
12.08.2009
Skólastarf með eðlilegum hætti, viðbragðsáætlun fyrir skóla í vinnslu
Allt skólastarf í landinu getur hafist með eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldur inflúensunnar A(H1N1)v. Þetta er tekið fram af gefnu tilefni því talsvert er um fyrirspurnir frá skólastjórnendum, foreldrafélögum og fleirum um möguleg áhrif inflúensufaraldursins á starfsemi skóla á komandi haustönn.
Málið var rætt í morgun á fundi samráðsnefndar sóttvarnalæknis, ríkislögreglustjóra og fulltrúa ráðuneyta. Í framhaldi af því vill sóttvarnalæknir árétta eftirfarandi:
- Inflúensufaraldurinn er tiltölulega vægur og skapar engar forsendur fyrir skorðum við skólahaldi. Skólastarf á því að geta hafist með eðlilegum hætti.
- Unnið er að viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs fyrir skóla landsins í samvinnu menntamálaráðuneytis og skólastjórnenda. Gert er ráð fyrir að sú áætlun verði tilbúin fyrir 1. september 2009.
- Skólastjórnendur eru hvattir til að halda því á lofti við nemendur og starfsmenn skóla að hreinlæti sé það sem mestu máli skipti til að draga úr smithættu. Þar ber fyrst að nefna handþvott en einnig að fólk hafi á sér einnota pappírsþurrkur til að hnerra eða hósta í. Vísað er á heimasíðuna influensa.is þar sem frekari upplýsingar er að finna.
- Veikist nemandi, þannig að einkennin bendi til inflúensu, er honum ráðlagt að halda sig heima í sjö daga frá upphafi veikinda.
- Ekki er mælt með fyrirbyggjandi veirulyfjameðferð í skólum.
112 greind tilfelli hérlendis
Greinst hafa 112 tilfelli inflúensu A(H1N1)v hérlendis, þar af er 61 karl og 51 kona. Flestir eru á aldrinum 15-29 ára og mikill meirihluti tilfellanna, 80 af alls 120, er á höfuðborgarsvæðinu.
Framvegis verða tölulegar upplýsingar um inflúensufaraldurinn hér á landi uppfærðar vikulega á heimasíðunni www.influensa.is.
Nánari upplýsingar
Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensu A (H1N1) eru birtar á www.influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á www.almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi á www.landlaeknir.is og á heimasíðum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.