Fréttir

03.09.2009

Inflúensulík einkenni og staðfest inflúensa A í Sögu sjúkraskrá

Frá 29. júní – 30. ágúst voru skráð samtals 795 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu A í Sögu sjúkraskrá, þar af eru 358 karlar og 437 konur. Flest tilfellin eru í aldurshópnum 15-34 ára. Hlutfallslega flest tilfelli eru skráð á Vesturlandi en fæst í Vestmannaeyjum, sjá mynd 3
Í viku 35 (24. – 30. ágúst) leituðu 100 manns með einkenni inflúensu eða voru staðfest með sýnatöku til heilbrigðisþjónustunnar samkvæmt skráningum í Sögu sjúkraskrá, sem er töluverð fækkun tilfella samanborið við vikurnar á undan. Ómögulegt er að spá með vissu um fjölda tilfella næstu vikur, tilfellum getur farið fækkandi áfram eða fjölgað að nýju eftir að skólastarf var hafið.
Skráningin byggir á sjúkdómsgreiningum sem læknar á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum í landinu skrá í Sögu sjúkraskrá. Sjúkdómsgreiningin er langoftast byggð á klínísku mati læknis en eru í stöku tilfellum einnig staðfest með sýnatöku. Þessi skráning endurspeglar að líkindum betur útbreiðslu inflúensunnar í samfélaginu en fjöldi staðfestra tilfella með sýnatöku.

Mynd 1

 

Mynd 2

 

Mynd 3

 

Sóttvarnalæknir

 

 

 

 

 

 

 


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli