Fréttir

04.09.2009

Stefnt að því að byrja að bólusetja gegn inflúensu A(H1N1)v í byrjun október

Sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að bóluefni gegn inflúensu A(H1N1)v berist til landsins um næstu mánaðamót og að í byrjun október verði unnt að byrja að bólusetja landsmenn gegn veikinni. Stjórnvöld hafa keypt 300.000 skammta sem koma hingað í fjórum sendingum, hinni síðustu um áramót.

Einungis verður bólusett á heilsugæslustöðvum, á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, annars vegar vegna þess að bóluefnið er vandmeðfarið og hins vegar til að tryggja hámarksnýtingu bóluefnisins. Bóluefnið kemur í 10 skammta glösum. Það þarf að blanda bóluefnið fyrir notkun og nota innan sólarhrings.

Bólusetja þarf hvern mann tvisvar, á þremur til fjórum vikum, til að tryggja hámarksónæmi eða vernd gagnvart inflúensunni.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin mælist til þess að stjórnvöld í hverju landi skipuleggi bólusetningu og tilgreini þá hópa sem fyrst þarf að bólusetja  Í því ljósi hefur sóttvarnalæknir sent erindi til heilbrigðisstarfsmanna þar sem mælst er til þess að fólk í tilgreindum markhópi I verði  bólusett fyrst og síðan endurbólusett þegar næsta sending bóluefnis berst til landsins.

Áætlað er að í markhópi I séu um 70.000 manns og  viðkomandi verða gefnar þrjár vikur í október til að mæta í bólusetningu.

Eftir það verður hvatt til þess að markhópur II gefi sig fram til bólusetningar, þ.e.a.s. allir á aldrinum sex mánaða til átján ára, og láti bólusetja sig á næstu þremur vikum (lok október og fram í nóvember).

Öðrum landsmönnum verður síðan boðin bólusetning.

 

Markhópur I

  • Heilbrigðisstarfsmenn og þeir sem gegna umönnunarstörfum á hjúkrunarheimilum og sambýlum.
  • Sjúklingar sem hafa tilgreinda „undirliggjandi“ sjúkdóma 1):
    •  Alvarlega hjartasjúkdóma (hjartabilun og alvarlega, meðfædda hjartasjúkdóma).
    • Alvarlega öndunarfærasjúkdóma sem þarfnast stöðugrar, fyrirbyggjandi lyfjameðferðar (meðal annars astma).
    • Hormónasjúkdóma (insúlínháð sykursýki og barksteraskortur).
    • Tauga- og vöðvasjúkdóma sem truflað geta öndun.
    • Alvarlega nýrnabilun.
    • Alvarlega lifrarsjúkdóma (skorpulifur).
    • Offitu.
    • Ónæmisbælandi sjúkdóma (á  t.d. við um krabbameinsmeðferð og líffæraþega).
  • Þungaðar konur.
  • Lögreglumenn, björgunarsveitir sem starfa að verkefnum vegna inflúensunnar, slökkviliðsmenn og sjúkraflutningamenn 2).

1)
Annars vegar er gert ráð fyrir því að læknar sjúklinga með sjúkdóma, sem taldir eru upp hér að framan, hvetji þá til að láta bólusetja sig á heilsugæslustöðinni sinni en hins vegar að sjúklingar með ofangreinda sjúkdóma hafi samband við lækna sína til að meta hvort þeir falli undir skilgreiningu um markhóp I.

Læknar útfylla staðlað eyðublað fyrir hvern þann sem þeir telja að þurfi bólusetningu samkvæmt ofangreindu. Sjúklingur framvísar blaðinu á heilsugæslunni þegar hann mætir til bólusetningar.

2)
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra tilgreinir þá sem bólusettir verða fyrst úr markhópi I.

Sóttvarnalæknir


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli