Fréttir

16.10.2009

Bólusetning þungaðra kvenna og sjúklinga í forgangshópum hefst í byrjun nóvember

  • Stefnt að því að bólusetja 75.000 manns til loka nóvember
  • Byrjað að bólusetja þungaðar konur og sjúklinga í forgangshópum í fyrstu viku nóvember
  • Almenn bólusetning hefst í nóvember

Gert er ráð fyrir því að bólusetja alls 75.000 manns til loka nóvembermánaðar, þ.e.a.s. starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, starfsmenn í öryggisþjónustu og í lykilhlutverkum af ýmsu tagi í opinberri stjórnsýslu og sjúklinga í skilgreindum forgangshópum.

Bólusetning heilbrigðisstarfsmanna er hafin, röðin kemur að starfsfólki í öryggisþjónustu í næstu viku (viku 43) og því næst að sjúklingum í forgangshópum og þunguðum konum í fyrstu viku nóvember (viku 45).

Vonir standa til að unnt verði að hefja almenna bólusetningu í nóvember.


Staðan 15. október 2009

Alls hafa um 323 einstaklingar greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi (staðfest á veirufræðideild Landspítala). Þar af voru 171 karlar og 152 konur, langflestir á höfuðborgarsvæðinu. 

Tafla 1 

 Búseta

 Fjöldi staðfestra tilfella

 Höfuðborgarsvæðið

 221

 Suðurnes

 20

 Vesturland

 17

 Vestfirðir

 9

 Norðurland

 14

 Austfirðir

 17

 Suðurland

 12

 Vestmannaeyjar

 2

 Búseta erlendis

 11


Frá 23. september 2009 hafa alls um 40 einstaklingar verið lagðir inn á Landspítala vegna staðfestrar eða líklegrar inflúensu A(H1N1)v 2009 og líklegt er að aukning á innlögnum endurspegli aukin veikindi í samfélaginu. Fólkið er á aldrinum eins árs til áttræðs og eru flest með undirliggjandi áhættuþætti. Í gær (15. október) voru 21 sjúklingur inniliggjandi á Landspítala vegna inflúensunnar þar af fjórir á gjörgæsludeild.


Forgangshópur sjúklinga við bólusetningu

  • Heilbrigðisstarfsmenn og þeir sem gegna umönnunarstörfum á hjúkrunarheimilum og sambýlum.
  • Lögreglumenn, björgunarsveitir sem starfa að verkefnum vegna inflúensunnar og  slökkviliðsmenn.1)
  • Þungaðar konur og sjúklingar sem hafa tilgreinda „undirliggjandi“ sjúkdóma: 2)
    • Alvarlega hjartasjúkdóma (hjartabilun og alvarlega, meðfædda hjartasjúkdóma).
    • Alvarlega öndunarfærasjúkdóma sem þarfnast stöðugrar, fyrirbyggjandi lyfjameðferðar (meðal annars astma).
    • Hormónasjúkdóma (insúlínháð sykursýki og barksteraskortur).
    • Tauga- og vöðvasjúkdóma sem truflað geta öndun.
    • Alvarlega nýrnabilun.
    • Alvarlega lifrarsjúkdóma (skorpulifur).
    • Offitu.
    • Ónæmisbælandi sjúkdóma (á  t.d. við um krabbameinsmeðferð og líffæraþega).

1)
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra tilgreinir þá sem bólusettir verða fyrst úr þessum hópi.

2)
Ætlast er til að læknar sjúklinga með þá sjúkdóma sem hér eru taldir upp hvetji sjúklinga sína til að láta bólusetja sig á heilsugæslustöð sem tilheyrir þeirra búsetu og afhendi þeim sérstakt staðfestingarblað sem á að framvísa á heilsugæslustöðinni þegar þeir koma til bólusetningar. Þótt sjúklingar með ofangreinda sjúkdóma hafi ekki fengið slíkt staðfestingarblað geta þeir engu að síður pantað tíma í bólusetningu á heilsugæslustöð sinni.

Ráðgert er að hefja bólusetningu allra í ofangreindum hópum í byrjun nóvember 2009. Auglýst verður með nægum fyrirvara hvenær heilsugæslustöðvar byrja að taka á móti tímapöntunum.


Nánari upplýsingar
Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensu A(H1N1) eru birtar á www.influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á www.almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi á www.landlaeknir.is og á heimasíðum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.

Sóttvarnalæknir og almanavarnadeild ríkislögreglustjóra


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli