Fréttir

19.10.2009

Dauðsfall af völdum inflúensunnar A(H1N1)v 2009

Átján ára fjölfötluð stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdum inflúensunnar A(H1N1)v 2009. Hún veiktist fyrir um 11 dögum og var lögð inn á spítalann síðastliðinn fimmtudag. Þetta er fyrsta dauðsfallið hérlendis af völdum inflúensunnar A(H1N1)v 2009. Rétt er að taka fram að öll umönnun og meðferð sem stúlkan naut í veikindum sínum heima hjá sér og á Landspítala var mjög góð og í samræmi við aðstæður.

Inflúensan færist enn í aukana, einkum á höfuðborgarsvæðinu, en einnig víða á landsbyggðinni. Undanfarnar þrjár vikur lætur nærri að fjöldi staðfestra tilfella hafi tvöfaldast í hverri viku miðað við vikuna á undan. Álag hefur að sama skapi aukist talsvert á starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar, bæði í heilsugæslunni og á Landspítala.

Um hádegisbil í dag voru 26 sjúklingar á Landspítala vegna inflúensunnar, þar af fjórir á gjörgæsludeild. Frá því síðastliðinn föstudag, 16. október, hafa fimm inflúensusjúklingar verið lagðir inn á spítalann og þrír verið útskrifaðir á sama tíma.

Alls hafa um 60 manns verið lagðir inn á Landsspítala vegna inflúensunnar frá upphafi faraldursins.

Frá 29. júní til 18. október 2009 höfðu borist alls 3.660 tilkynningar um inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfest inflúensutilfelli á Íslandi samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Staðfest tilfelli eru orðin alls 479 (sjá myndir).

Inflúensulík einkenni (ILE) 29/6 – 18/10 2009 á Íslandi


 

Inflúensulík einkenni (ILE) á 100 þús. íbúa 29/6 – 18/10 2009. Höfuðborgarsvæðið og landsbyggðin

 

Sóttvarnalæknir


Nánari upplýsingar

Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensu A (H1N1)v 2009 eru birtar á www.influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á www.almannavarnir.is. Á fyrrnefndu slóðinni er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í sambandi við hana. Sjá einnig www.landlaeknir.is og vefsetur Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/  og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, http://www.who.int/en/  


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli