Fréttir
30.10.2009
Útlit fyrir að almenn bólusetning við inflúensunni geti hafist í síðari hluta nóvember
Horfur eru á að unnt verði að hefja almenna bólusetningu við inflúensunni A(H1N1)v 2009 fyrr en gert var áður ráð fyrir, þ.e.a.s. í síðari hluta nóvember í stað desember. Ástæðan er sú að meira berst af bóluefni til landsins næstu daga og vikur en reiknað var með í upphaflegum áætlunum.
Nú er búið að bólusetja yfir 20.000 af alls um 75.000 manns sem miðað er við að séu í skilgreindum forgangshópum bólusetningar samkvæmt tilmælum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO. Fari svo sem horfir verður lokið að mestu við að bólusetja fólk í þessum forgangshópum um miðjan nóvember, þ.e.a.s. starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og lykilhlutverkum af ýmsu tagi í opinberri stjórnsýslu, og sjúklinga með „undirliggjandi sjúkdóma“.
- Engar fréttir hafa borist af alvarlegum aukaverkunum bólusetningar. Sumir hafa fengið þrota (væga bólgu) eða roða í húð á stungustað. Þetta er einfaldlega kröftug ónæmissvörun líkamans og jákvæð staðfesting á að bóluefnið sé öflugt og skilvirkt!
- Bráðabirgðaniðurstöður rannsókna á bóluefninu benda eindregið til þess að einn skammtur veiti hámarksvörn gagnvart inflúensunni. Sóttvarnalæknir telur því fullnægjandi að menn láti bólusetja sig einu sinni en tekur jafnframt fram að ef vísbendingar berist um annað í einhverjum tilvikum verði birtar upplýsingar eða tilmæli um að tilteknir hópar láti bólusetja sig í annað sinn.
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.