Fréttir
09.11.2009
Inflúensa A(H1N1)v 2009 staðfest í svínum
Inflúensa A(H1N1)v 2009 hefur verið staðfest í svínum á einu svínabúi í Eyjafirði. Sýni sem voru tekin föstudaginn 6. nóvember voru send til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum þar sem inflúensan var staðfest. Til að hindra útbreiðslu smits til annarra búa hefur bann verið sett á flutning dýra frá búinu og sóttvarnir hertar.
Engin tengsl eru talin vera milli þessara sýkinga og fyrstu staðfestu greiningar á svínainflúensu í svínum á Minni-Vatnsleysu.
Einkenni inflúensu í svínum eru m.a. hár hiti og lystarleysi, kvef og hósti. Svínin ná sér oftast eftir þriggja til sex daga veikindi.
Almennt gildir að óheimilt er að slátra veikum dýrum og á þetta jafnt við um svínaflensu sem aðra sjúkdóma. Ekki er ástæða til að banna slátrun einkennalausra svína þótt önnur svín á búinu séu veik, en slátrun frá búinu hefur verið frestað vegna banns á flutningi dýra til og frá búinu.
Ekkert bendir til að svínaflensa smitist með svínakjöti og fólki stafar því engin hætta af neyslu þess.
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008

2007

2006

2005

2004

2003

2002

2001

2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.