Fréttir
12.11.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa
Í síðustu viku (viku 45) greindust samtals 797 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, en það eru töluvert færri en í vikunni á undan (mynd 1). Tifellum fækkaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni (mynd 2). Frá 29. júní – 8. nóvember hafa alls 8650 einstaklingar greinst með inflúensulík einkenni. Þar af eru 3942 karlar og 4618 konur.
Enn greinast hlutfallslega fleiri börn í aldurshópnum 0–9 ára með inflúensulík einkenni, færri greinast í öðrum aldurshópum og eftir sextugt fækkar tilfellum verulega.
Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi
Þann 8. nóvember sl. höfðu alls 676 einstaklingar greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 332 karlar og 344 konur. Í síðustu viku (viku 45) var sýkingin staðfest hjá 30 einstaklingum, sem eru færri en í vikunni á undan (vika 44), en þá var sýkingin staðfest hjá 55 einstaklingum (mynd 3). Tilfelli hafa verið staðfest hjá fólki með búsetu í öllum sóttvarnaumdæmum.
Innlagnir á sjúkrahús
Frá 23. september til 9. nóvember 2009 hafa rúmlega 170 einstaklingar verið lagðir inn á sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009.
Langflestir hafa verið lagðir inn á Landspítala eða 133, þar af hafa alls 19 einstaklingar legið á gjörgæsludeild Landspítalans vegna inflúensu. Þann 9. nóvember voru 31 sjúklingur innliggjandi með inflúensu á Landspítala, þar af voru sjö á gjörgæslu.
Alls 20 einstaklingar hafa lagst inn á Sjúkrahúsið á Akureyri vegna inflúensu, þar af hefur einn legið á gjörgæsludeild.
10 manns hafa verið lagðir inn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og voru tveir inniliggjandi þar þann 9. nóvember sl.
Stöku innlagnir hafa orðið á öðrum heilbrigðisstofnunum, þar af voru tveir á sjúkrahúsinu í Vestamanneyjum og á Neskaupstað og einn á Blönduósi, Selfossi og Egilstöðum.
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.