Fréttir
26.11.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa
Í síðustu viku (viku 47) greindust samtals 250 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, sem er áframhaldandi fækkun tilfella miðað við undarfarnar vikur (mynd 1). Tilfellum fækkaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Frá 29. júní – 22. nóvember hafa alls 9456 einstaklingar greinst með inflúensulík einkenni, þar af eru 4323 karlar og 5133 konur.
Enn greinast hlutfallslega fleiri börn í aldurshópnum 0–9 ára með inflúensulík einkenni, færri greinast í öðrum aldurshópum og eftir sextugt fækkar tilfellum verulega.
Áætlaður heildarfjöldi sýktra í samfélaginu er um 60 þúsund manns. Þegar heildarfjöldi sýktra er áætlaður þarf að gera ráð fyrir að hluti inflúensulíkra einkenna sé í raun aðrar öndunarfærasýkingar og einungis hluti þeirra sem sýkjast leita til læknis. Þessar stærðir eru ekki fyllilega þekktar sem veldur nokkurri óvissu við áætlun á heildarfjölda sýktra.
Sýnataka og staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi
Þann 22. nóvember sl. höfðu alls 698 einstaklingar greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 344 karlar og 354 konur. Í síðustu viku (viku 47) var sýkingin staðfest hjá sjö einstaklingum, sem er fækkun miðað við undanfarnar vikur. Sýnum sem send eru í greiningu á inflúensu A(H1N1)v fer stöðugt fækkandi sem og hlutfall jákvæðra sýna (mynd 3).
Innlagnir á sjúkrahús og dauðsföll
Frá 23. september til 22. nóvember 2009 hafa tæplega 180 einstaklingar verið lagðir inn á sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009.
Langflestir hafa verið lagðir inn á Landspítala eða um 130, þar af hafa alls 20 einstaklingar legið á gjörgæsludeild Landspítalans. Þann 25. nóvember voru fimm sjúklingur innliggjandi með inflúensu á Landspítala, þar af var einn á gjörgæslu.
Alls hafa 26 einstaklingar lagst inn á sjúkrahúsið á Akureyri vegna inflúensu, þar af hefur einn legið á gjörgæsludeild.
Tíu manns hafa verið lagðir inn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Stöku innlagnir hafa orðið á öðrum heilbrigðisstofnunum. Þar af voru tveir á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum og á Neskaupstað og einn á Blönduósi, Selfossi og Egilsstöðum.
Tveir einstaklingar, 18 ára stúlka og 81 árs karlmaður hafa látist vegna staðfestrar inflúensu A(H1N1)v 2009 eða fylgikvilla í kjölfar sýkingarinnar. Stúlkan lést 19. október og maðurinn lést 20. nóvember, bæði voru með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma.
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.