Fréttir
11.12.2009
Nýrri sendingu bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) dreift til heilsugæslustöðva eftir helgi
Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember, og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista.
- Bólusetning hefst þannig á nýjan leik miðvikudaginn 16. desember og þá ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á biðlista.
- Tekið er við nýjum pöntunum vegna bólusetningar frá og með mánudegi 14. desember, þ.e.a.s. á þeim heilsugæslustöðvum sem hafa ekki ráðstafað fyrir fram öllu bóluefninu í væntanlegri sendingu.
- Bóluefni verður næst dreift um landið 6. janúar 2010 og verður tekið við pöntunum í þá sendingu eftir áramótin.
Sóttvarnalæknir beinir því til heilsugæslustöðva að gefa skýrar upplýsingar á heimasíðum sínum, og við símsvörun á hverjum stað, um gang bólusetningarinnar og helstu tímasetningar. Þetta er afar mikilvægt því staða mála er mismunandi á heilsugæslustöðvunum, eins og eðlilegt er. Þannig verður unnt á sumum heilsugæslustöðvum að bólusetja fleiri núna í desember en eru þar á biðlista en á öðrum heilsugæslustöðvum dugar ný sending bóluefnis nú ekki til að bólusetja alla þá sem hafa skráð sig í bólusetningu. Í einhverjum tilvikum kemur því röðin ekki að fólki á biðlistum fyrr en í janúar.
Mjög hefur dregið úr inflúensufaraldrinum hér á landi undanfarna daga og vikur. Þrír sjúklingar lágu í gær á Landspítala vegna veikinnar, þar af einn á gjörgæsludeild.
Í 49. viku ársins (29. nóvember-7. desember) var greint 101 inflúensulíkt tilfelli. Að mati sóttvarnalæknis hafa um 60.000 manns sýkst af inflúensunni frá því að faraldurinn hófst í vor.
Um 180 manns hafa verið lagðir inn á sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu, langflestir á Landspítala eða um 130.
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.