Ráðleggingar til einstaklinga með inflúensulík einkenni
Ráðleggingar til einstaklinga með inflúensulík einkenni
Þessar leiðbeiningar gilda eingöngu fyrir þá sem falla að eftirfarandi lýsingu:
| Einkenni: | Tengsl: | |
| Hiti yfir 38°C og einkenni bráðrar öndunarfærasýkingar | Náin umgengni við staðfest tilfelli nýrrar inflúensu A(N1H1)v veiru meðan viðkomandi var veikur. | |
| eða | og | eða |
| Lungnabólga (alvarleg veikindi í öndunarfærum). | Ferðalag til svæðis með viðvarandi smit manna á milli. |
- Ef þú ert í vinnu eða á fjölmennum stöðum þegar þú veikist, farðu heim.
- Hringdu í heilsugæsluna á þínu svæði og fáðu ráðleggingar.
- Ef þörf er á læknisrannsókn, fylgdu leiðbeiningum frá heilsugæslunni um hvernig
henni verður háttað til að koma í veg fyrir að aðrir smitist. - Taktu verkjastillandi eða hitalækkandi lyf í samræmi við leiðbeiningarnar sem fylgja
með lyfinu. Börn undir 16 ára aldri mega ekki taka aspirin. - Drekktu vel.
- Fylgstu vel með ráðleggingum sóttvarnalæknis í fjölmiðlum og á www.influensa.is
Uppfært 18. ágúst 2009