Símaþjónusta

Við bráð, alvarleg veikindi skal hringja í 112.

Við önnur veikindi vegna inflúensu skal hringja í heilsugæslustöðina á sínu heimasvæði á dagvinnutíma. Eftir dagvinnutíma frá 16:00 til 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar er hægt að hringja ýmist í vaktþjónustu viðkomandi landshluta eða Læknavaktina í síma 1770. Læknavaktin er með vaktþjónustu á höfuðborgarsvæðinu en sinnir einnig fyrirspurnum sem berast frá landsbyggðinni.

Hjálparsími Rauða krossins, 1717, veitir almennar upplýsingar um inflúensu A(H1N1)v, en sóttvarnalæknir hefur annast fræðslu fyrir starfsmenn og sjálfboðaliða Hjálparsímans. Markmið með símsvörun Hjálparsímans er að draga úr almennum ótta og minnka álag á heilsugæsluna og Læknavaktina. Hjálparsíminn svarar ekki fyrirspurnum er varða veikindi þeirra sem hringja eða aðstandenda þeirra, öllum slíkum spurningum verður beint á heilsugæslu viðkomandi svæðis eða Læknavaktina.

Vefsett 26. ágúst 2009
 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli