Bankar og sparisjóðir
Almennar leiðbeiningar til viðskiptavina banka og sparisjóða vegna inflúensufaraldurs
Samtök fjármálafyrirtækja vilja beina eftirfarandi tilmælum til viðskiptavina banka og sparisjóða um mögulegan undirbúning gagnvart hugsanlega skæðum faraldri inflúensu:
- Kynntu þér möguleika netbanka þíns til að eiga almenn bankaviðskipti, greiðslu reikninga og millifærslu fjármuna.
- Gakktu úr skugga um að PIN númer, leyninúmer og aðgangsorð fyrir notkun greiðslukorta og bankareikninga séu til reiðu.
- Athugaðu gildistíma greiðslukorta og endurnýjaðu tímanlega ef þörf krefur.
- Kynntu þér staðsetningu hraðbanka og bankaútibúa í nágrenni þínu.
- Fylgstu með fréttum og tilmælum á www.influensa.is
Sóttvarnalæknir og
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Vefsett 23. september 2009