Fréttir um inflúensu

24.1.2012

Fjöldi tilfella með inflúensulík einkenni

Inflúensan færist í aukana og tilkynningum um inflúensulík einkenni fer fjölgandi (sjá mynd). Inflúensan hófst um svipað leyti fyrir ári síðan og er fjöldi tilfella eftir vikum sambærilegur milli ára. Tölulegar upplýsingar er hægt að nálgast á www.influensa.is
Lesa nánar

22.11.2011

Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins

Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi.
Lesa nánar

31.3.2011

Inflúensu verður enn vart

Enn er töluvert um inflúensulík einkenni, en svo virðist sem eitthvað dragi úr fjölda tilfella að nýju (mynd 1). Líklegt er að inflúensutilfellum fari fækkandi næstu vikur. Inflúensulík einkenni eru algengust meðal 5–9 ára barna.
Lesa nánar

23.3.2011

Inflúensutilfellum fjölgar að nýju

Inflúensan færðist aftur í aukana í síðustu viku (viku 11). Samkvæmt fjölda tilfella með inflúensulík einkenni fyrri helming þeirrar viku sem nú er að líða (viku 12) virðist inflúensan ekki vera í rénun.
Lesa nánar

16.3.2011

Inflúensutilfellum fer fækkandi

Nokkuð dregur úr heildarfjölda tilfella með inflúensulík einkenni samkvæmt tilkynningum sem berast sóttvarnalækni. Sé litið á aldursdreifingu kemur í ljós að inflúensulík einkenni voru algengust meðal barna upp úr miðjum febrúar, en síðustu tvær vikur hefur dregið nokkuð úr veikindum í þeim aldurshópi.
Lesa nánar

24.2.2011

Inflúensutilfellum fer enn fjölgandi

Fjöldi þeirra sem greinast með inflúensulík einkenni hefur aukist síðastliðnar vikur. Samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala hafa alls 19 manns greinst með svínainflúensu (inflúensu A(H1N1)2009) í desember og janúar, en síðastliðnar þrjár vikur hefur enginn verið með svínainflúensu staðfesta á rannsóknarstofu.
Lesa nánar

04.2.2011

Inflúensutilfellum fjölgar enn

Eftir áramótin varð nokkur aukning á fjölda þeirra sem leituðu læknis með inflúensulík einkenni. Síðastliðnar tvær vikur, frá 17.–30. janúar (viku 3 og 4), hefur fjöldi tilfella verið svipaður milli vikna (sjá töflu). Of snemmt er þó að segja hvort inflúensan hefur náð hámarki.
Lesa nánar

20.1.2011

Alvarlega veikur sjúklingur með svínainflúensu á gjörgæsludeild Landspítala

Í gær þann 19. janúar var þrítug kona lögð inn á gjörgæsludeild Landspítala með alvarleg sjúkdómseinkenni af völdum svínainflúensu.
Lesa nánar

14.1.2011

Inflúensan sækir í sig veðrið

Á síðastliðnum þremur vikum hafa alls tíu einstaklingar greinst með inflúensu staðfesta með sýnatöku á Íslandi. Þar af eru átta með inflúensu A(H1N1)2009 (svínaflensu), einn með árlega inflúensu A og einn með inflúensu B.
Lesa nánar

28.12.2010

Farsóttafréttir eru komnar út

Í dag kemur út á vef Landlæknisembættisins fimmta og jafnframt síðasta tölublað sjötta árgangs Farsóttafrétta. Að þessu sinni er fjallað um berkla á Íslandi 2010 og fyrstu inflúensutilfelli ársins.
Lesa nánar

23.12.2010

Tilmæli um bólusetningu gegn svínainflúensu

Ungur fullorðinn óbólusettur einstaklingur greindist nýlega með svínainflúensu en er ekki alvarlega veikur. Sýkingu hans má líklega rekja til Englands en þar hafa allmargir einstaklingar greinst með alvarlega svínainflúensu og tæplega 20 einstaklingar látist, flestir óbólusettir.
Lesa nánar

17.12.2010

Bólusetning gegn árlegri inflúensu

Árleg inflúensa er nú farin að láta á sér kræla í Evrópu. Þó hún sé ekki orðin útbreidd meðal almennings þá hafa allmargir einstaklingar veikst alvarlega.
Lesa nánar

11.8.2010

Viðbúnaðarstig vegna svínainflúensu lækkað

Þann 10. ágúst 2010 lýsti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin því yfir að heimsfaraldur inflúensu (svínainflúensa) væri genginn yfir og viðbúnaðarstig vegna faraldursins yrði því lækkað. Jafnframt hvetur stofnunin til ýtrustu árvekni því reynslan hefur sýnt að heimsfaraldrar ganga yfir í síðari bylgjum sem erfitt er að spá fyrir um.
Lesa nánar

23.2.2010

Bólusetningarátak gegn svínainflúensu

Heilbrigðisyfirvöld hvetja landsmenn eindregið til þess að láta bólusetja sig gegn svínainflúensu A(H1N1) og verjast á þann hátt nýju áhlaupi veikinnar sem búast má við síðar á þessu ári eða því næsta.
Lesa nánar

08.2.2010

Ríflegur helmingur þjóðarinnar orðinn ónæmur fyrir svínainflúensu A(H1N1)

Afar góð viðbrögð Íslendinga skila miklum árangri og hvatt er til þess að þeir, sem ekki hafa látið bólusetja sig, mæti nú til bólusetningar!
Lesa nánar

21.12.2009

Farsóttafréttir eru komnar út

Á vef Landlæknisembættisins er komið út síðasta tölublað Farsóttafrétta á þessu ári. Í fréttabréfinu er að greint frá fjölda HIV-sýkinga á árinu 2009 og vaxandi fjölda fíkniefnaneytenda í hópi hinna sýktu. Þá er skýrt frá þróun svínainflúensunnar hér á landi, sem nú er í rénun, og áframhaldandi bólusetningum gegn henni.
Lesa nánar

11.12.2009

Nýrri sendingu bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) dreift til heilsugæslustöðva eftir helgi

Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember, og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista.
Lesa nánar

10.12.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa

Mikið hefur dregið úr inflúensunni. Í síðustu viku (viku 49) greindist samtals 101 einstaklingur með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar.
Lesa nánar

01.12.2009

Röskun á bólusetningu gegn svínainflúensu

Ítrekað er að þeir einstaklingar sem áttu von á að komast í bólusetningu gegn svínainflúensu á næstu dögum munu ekki komast í bólusetningu fyrr en eftir 15. desember. Ástæðan er seinkun á afhendingu bóluefnisins.
Lesa nánar

27.11.2009

Áætlanir um bólusetningu vegna inflúensunnar A(H1N1) raskast vegna tafa á afhendingu bóluefnis

Fyrirsjáanlegt er að gildandi áætlun um bólusetningu almennings gegn inflúensunni A(H1N1) raskast verulega vegna þess að minna berst til landsins af bóluefni en gert var ráð fyrir og afhending dregst.
Lesa nánar

26.11.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa

Í síðustu viku (viku 47) greindust samtals 250 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, sem er áframhaldandi fækkun tilfella miðað við undarfarnar vikur (mynd 1). Tilfellum fækkaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
Lesa nánar

23.11.2009

Stökkbreytingar á svínainflúensuveirunni

Stökkbreytingum á svínainflúensuveirunni hefur verið lýst á nokkrum stöðum í heiminum þ. á m. í Noregi. Inflúensuveirur taka alltaf einhverjum minniháttar breytingum og búast má við að svínainflúensan geri það líka. Það er óljóst hvort veiran verði skæðari með þessum breytingum sem lýst hefur verið og ástæðulaust að óttast það að svo stöddu.
Lesa nánar

20.11.2009

Stór sending af bóluefni væntanleg um helgina - Þriðjungur þjóðarinnar ónæmur gagnvart inflúensunni A(H1N1)

20.000 skammtar af bóluefni gegn inflúensunni A(H1N1) eru væntanlegir til landsins um helgina og þeim verður dreift strax til heilsugæslustöðva. Bólusetning almennings ætti því að geta hafist víðast hvar strax eftir helgi, eins og ráð var fyrir gert en nokkur óvissa ríkti um hvort hægt yrði að standa við tímaáætlanir vegna tafa á afhendingu bóluefnis frá framleiðanda ytra.
Lesa nánar

12.11.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa

Í síðustu viku (viku 45) greindust samtals 797 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, en það eru töluvert færri en í vikunni á undan (mynd 1). Tifellum fækkaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni (mynd 2).
Lesa nánar

11.11.2009

Farsóttafréttir eru komnar út

Á vef Landlæknisembættisins er komið út 10. – 11. tölublað Farsóttafrétta. Í fréttabréfinu er að þessu sinni greinargerð um þróun inflúensufaraldursins hér á landi, allt frá fyrstu tilfellum til loka síðustu viku.
Lesa nánar

10.11.2009

Seinkun á afhendingu bóluefnis

Seinkun hefur orðið á afhendingu bóluefnis gegn svínainflúensu hingað til lands í þessari viku og auk þess kemur minna magn en gert hafði verið ráð fyrir. Af þessu leiðir að seinkun getur orðið á bólusetningu einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma sem ráðgerð hafði verið í þessari og næstu viku.
Lesa nánar

09.11.2009

Inflúensa A(H1N1)v 2009 staðfest í svínum

Inflúensa A(H1N1)v 2009 hefur verið staðfest í svínum á einu svínabúi í Eyjafirði. Sýni sem voru tekin föstudaginn 6. nóvember voru send til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum þar sem inflúensan var staðfest. Til að hindra útbreiðslu smits til annarra búa hefur bann verið sett á flutning dýra frá búinu og sóttvarnir hertar.
Lesa nánar

06.11.2009

Almenn bólusetning gegn inflúensu A(H1N1) hefst mánudaginn 23. nóvember

Landsmenn allir geta pantað tíma á heilsugæslustöðvum fyrir bólusetningu gegn inflúensu A(H1N1) frá og með mánudegi 16. nóvember. Viku síðar, mánudaginn 23. nóvember, verður byrjað að bólusetja þá sem fyrstir skráðu sig.
Lesa nánar

30.10.2009

Útlit fyrir að almenn bólusetning við inflúensunni geti hafist í síðari hluta nóvember

Horfur eru á að unnt verði að hefja almenna bólusetningu við inflúensunni A(H1N1)v 2009 fyrr en gert var áður ráð fyrir, þ.e.a.s. í síðari hluta nóvember í stað desember. Ástæðan er sú að meira berst af bóluefni til landsins næstu daga og vikur en reiknað var með í upphaflegum áætlunum.
Lesa nánar

30.10.2009

Hlutfallslega fleiri börn veikjast nú af inflúensu

Langflest inflúensutilfelli hérlendis, undanfarna daga og vikur, greinast hjá börnum á aldrinum 0-9 ára. Þetta er marktæk breyting frá því í júlí og ágúst, þegar flestir sem veiktust voru á aldrinum 15-30 ára.
Lesa nánar

29.10.2009

Viðbúnaður á Landspítala færður á „virkjunarstig“ vegna álags af völdum inflúensunnar

Viðbúnaður á Landspítala var í dag færður á svokallað virkjunarstig, samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans, vegna aukins álags af völdum inflúensufaraldursins.
Lesa nánar

29.10.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa

Í síðustu viku (viku 43) greindust samtals 1781 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, sem er nokkuð svipað og vikuna þar á undan, sjá mynd 1. Frá 29. júní – 25. október hafa alls 6105 einstaklingar greinst með inflúensulík einkenni.
Lesa nánar

Mynd með frétt
23.10.2009

Símaráðgjöf í inflúensufaraldri

Fjölgað hefur verið hjúkrunarfræðingum sem svara í síma Læknavaktarinnar, númer 1770, á kvöldin og um helgar vegna aukins álags sem rekja má til inflúensufaraldursins.
Lesa nánar

22.10.2009

Tímapantanir frá og með deginum í dag

Heilsugæslustöðvar landsins taka frá og með deginum í dag, 22. október, við tímapöntunum frá sjúklingum með tilgreinda „undirliggjandi sjúkdóma“ og frá þunguðum konum vegna bólusetningar við inflúensunni A(H1N1)v 2009.
Lesa nánar

22.10.2009

Bólusetning gegn árlegri inflúensu verndar ekki gegn svínainflúensu

Að gefnu tilefni vilja landlæknir og sóttvarnalæknir taka fram að bólusetning gegn árlegri inflúensu verndar ekki gegn svínainflúensu. Bólusetning gegn inflúensu, sem nú er auglýst í ýmsum fyrirtækjum og lyfjabúðum, er aðeins gegn árlegri inflúensu.
Lesa nánar

21.10.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa

Inflúensan færist enn í aukana. Frá 29. júní – 18. október 2009 bárust samtals 4246 tilkynningar um inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfesta inflúensu samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Þar af voru 1964 karlar og 2282 konur.
Lesa nánar

20.10.2009

Símaþjónusta vegna inflúensu

Ef upp koma veikindi sem benda til inflúensu má hringja á dagvinnutíma í heilsugæslustöðina á heimasvæði viðkomandi sjúklings. Eftir dagvinnutíma, frá kl.16:00 til 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar, er hægt að hringja ýmist í vaktþjónustu viðkomandi landshluta eða Læknavaktina í síma 1770. Ef upp koma bráð, alvarleg veikindi skal hringja í 112.
Lesa nánar

19.10.2009

Dauðsfall af völdum inflúensunnar A(H1N1)v 2009

Átján ára fjölfötluð stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdum inflúensunnar A(H1N1)v 2009. Hún veiktist fyrir um 11 dögum og var lögð inn á spítalann síðastliðinn fimmtudag. Þetta er fyrsta dauðsfallið hérlendis af völdum inflúensunnar.
Lesa nánar

16.10.2009

Bólusetning þungaðra kvenna og sjúklinga í forgangshópum hefst í byrjun nóvember

Stefnt er að því að bólusetja 75.000 manns gegn svínainflúensu til loka nóvember. Byrjað verður að bólusetja þungaðar konur og sjúklinga í forgangshópum í fyrstu viku nóvember. Almenn bólusetning hefst í nóvember.
Lesa nánar

14.10.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í rafrænni sjúkraskrá

Inflúensan færist enn í aukana. Frá 29. júní – 11. október 2009 bárust samtals 2545 tilkynningar um inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfesta inflúensu samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Þar af voru 1184 karlar og 1361 konur.
Lesa nánar

13.10.2009

Vísbendingar um að inflúensufaraldur A (H1N1)v 2009 sé að magnast

Undanfarnar tvær vikur hefur inflúensulíkum sjúkdómstilfellum fjölgað talsvert hérlendis, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Hátt hlutfall sýna frá þessum sjúklingum greinist með inflúensu A(H1N1)v á veirufræðideild Landspítalans sem bendir til þess að flest tilfellin séu af völdum inflúensunnar.
Lesa nánar

08.10.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í rafrænni sjúkraskrá

Svo virðist sem inflúensan sé aftur að færast í aukana á höfuðborgarsvæðinu en samtímis dregur úr fjölda sýkinga á landsbyggðinni.
Lesa nánar

02.10.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi

Þann 27. september 2009 höfðu alls 214 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi, sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 115 karlar og 99 konur.
Lesa nánar

25.9.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi

Þann 20. september 2009 höfðu alls 199 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi, sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 107 karlar og 92 konur.
Lesa nánar

18.9.2009

Farsóttafréttir eru komnar út

Farsóttafréttir eru komnar út á vef Landlæknisembættisins. Í fréttabréfinu er að þessu sinni eingöngu fjallað um heimsfaraldur inflúensu hér á landi, allt frá því fyrsti sjúklingurinn greindist hér með inflúensu af völdum veirunnar A(H1N1)v 2009 í maímánuði til þessa dags.
Lesa nánar

17.9.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í Sögu sjúkraskrá

Frá 29. júní – 13. september 2009 voru skráð samtals 1264 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu í Sögu sjúkraskrá, þar af voru 570 karlar og 694 konur.
Lesa nánar

17.9.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi 13. september 2009

Þann 6. september 2009 höfðu alls 193 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi, sem staðfest voru á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 98 karlar og 85 konur.
Lesa nánar

11.9.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi 6. september 2009

Þann 6. september 2009 höfðu alls 176 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi, sem staðfest voru á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 96 karlar og 80 konur.
Lesa nánar

11.9.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í Sögu sjúkraskrá

Frá 29. júní – 6. september 2009 voru skráð samtals 1078 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu í Sögu sjúkraskrá, þar af voru 492 karlar og 586 konur.
Lesa nánar

04.9.2009

Nýjar leiðbeiningar um fjarvistir frá vinnu og skóla vegna veikinda af völdum inflúensu A(H1N1)v

Með hliðsjón af nýjum upplýsingum er einstaklingum sem taldir eru vera með sýkingu af völdum inflúensu A(H1N1)v ráðlagt að halda sig heima í tvo daga eftir að þeir verða hitalausir.
Lesa nánar

04.9.2009

Stefnt að því að byrja að bólusetja gegn inflúensu A(H1N1)v í byrjun október

Sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að bóluefni gegn inflúensu A(H1N1)v berist til landsins um næstu mánaðamót og að í byrjun október verði unnt að byrja að bólusetja landsmenn gegn veikinni.
Lesa nánar

03.9.2009

Inflúensulík einkenni og staðfest inflúensa A í Sögu sjúkraskrá

Frá 29. júní – 30. ágúst voru skráð samtals 795 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu A í Sögu sjúkraskrá, þar af eru 358 karlar og 437 konur. Flest tilfellin eru í aldurshópnum 15-34 ára.
Lesa nánar

03.9.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi 30. ágúst 2009

Þann 30. ágúst 2009 höfðu alls 168 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi, sem staðfest voru á veirufræðideild Landspítala. Þar af eru 92 karlar og 76 konur. Ekki er vitað um alvarleg veikindi af völdum inflúensu A(H1N1)v veirunnar hérlendis.
Lesa nánar

26.8.2009

Inflúensulík einkenni og staðfest inflúensa A í Sögu sjúkraskrá

Frá 29. júní – 23. ágúst voru skrá samtals 684 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu A í Sögu sjúkraskrá, þar af eru 305 karlar og 379 konur.
Lesa nánar

26.8.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi 23. ágúst 2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(N1N1)v 23. ágúst 2009 Alls hafa greinst 162 tilfelli með inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi, sem staðfest er með sýnatöku samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala frá því í maí 2009.
Lesa nánar

20.8.2009

Inflúensulík einkenni og staðfest inflúensa A úr Sögu sjúkraskrá

Skráning á inflúensulíkum einkennum og staðfestri inflúensu A fer fram í Sögu sjúkraskrá á öllum heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum landsins.
Lesa nánar

19.8.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(N1N1)v 19. ágúst 2009

Alls hafa greinst 142 tilfelli með staðfesta inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala frá því í maí 2009. Þar af eru 79 karlar og 63 konur.
Lesa nánar

13.8.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 13. ágúst 2009

Alls hafa greinst 118 tilfelli með staðfesta sýkingu af völdum inflúensu A(H1N1)v veiru á Íslandi frá því í maí 2009.
Lesa nánar

12.8.2009

Skólastarf með eðlilegum hætti, viðbragðsáætlun fyrir skóla í vinnslu

Allt skólastarf í landinu getur hafist með eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldur inflúensunnar A(H1N1)v. Þetta er tekið fram af gefnu tilefni því talsvert er um fyrirspurnir frá skólastjórnendum, foreldrafélögum og fleirum um möguleg áhrif inflúensufaraldursins á starfsemi skóla á komandi haustönn.
Lesa nánar

10.8.2009

Tilfelli inflúensu A (H1N1)v orðin 101 á Íslandi

Alls hafa greinst 101 tilfelli með staðfesta sýkingu af völdum inflúensu A(H1N1)v veiru á Íslandi frá því í maí 2009. Þar af eru 55 karlar og 46 konur.
Lesa nánar

07.8.2009

Staðfest inflúensa A (H1N1)v á Íslandi miðað við 7. ágúst 2009

Alls hafa greinst 72 tilfelli með staðfesta sýkinga af völdum inflúensu A(H1N1)v veiru á Íslandi frá því í maí 2009. Þar af eru 37 karlar og 35 konur. Ekki er vitað um alvarleg veikindi af völdum inflúensu A(H1N1)v veirunnar hérlendis.
Lesa nánar

06.8.2009

Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 63 einstaklingum á Íslandi

Á síðustu tveimur sólarhringum var ný inflúensa A(H1N1)v staðfest hjá níu manns og heildarfjöldi staðfestra tilfella er því samtals 63.
Lesa nánar

04.8.2009

Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 54 einstaklingum á Íslandi

Alls hafa verið staðfest þrjú tilfelli af nýrri inflúensu A(H1N1)v yfir verslunarmannahelgina og er því heildarfjöldi staðfestra tilfella samtals 54. Enginn hefur orðið alvarlega veikur.
Lesa nánar

31.7.2009

51 staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1) hérlendis

Á síðastliðnum tveimur sólarhringum var ný inflúensa A(H1N1) staðfest hjá fimm einstaklingum og heildarfjöldi staðfestra tilfella því samtals 51, enginn er alvarlega veikur.
Lesa nánar

29.7.2009

46 staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1) hérlendis

Greinst hafa 12 tilfelli inflúensunnar A(H1N1) hér á landi undanfarna tvo sólarhringa og þar með eru staðfest tilfelli orðin alls 46 á Íslandi frá því í maímánuði síðastliðnum.
Lesa nánar

27.7.2009

Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 34 einstaklingum á Íslandi

Síðustu tvo sólarhringana hafa ellefu tilfelli verið staðfest á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1)v og hefur hún því greinst hjá samtals 34 einstaklingum frá því í maí sl.
Lesa nánar

Mynd með frétt
24.7.2009

Munum eftir inflúensunni – ráðleggingar um smitvarnir

Sóttvarnalæknir hefur, í samráði við ríkislögreglustjórann almannavarnadeild, gefið út bækling með ráðleggingum til almennings um smitvarnir gegn inflúensuveirunni A(H1N1)v. Þessi bæklingur er önnur útgáfa bæklings sem gefinn var út fyrr í júní.
Lesa nánar

24.7.2009

Nýja inflúensan A(H1N1)v hefur verið staðfest hjá 23 einstaklingum á Íslandi

Síðustu tvo sólarhringana hafa fimm tilfelli verið staðfest á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1)v og hefur hún því greinst hjá samtals 23 einstaklingum frá því í maí sl. Um er að ræða 19 ára gamlan bandarískan ferðamann sem kom til landsins 21. júlí sl., 32 ára gamla konu sem hafði umgengist smitaðan einstakling hér á landi, 25 ára gamla konu sem einnig var í nánum tengslum við smitaðan einstakling, 25 ára gamla konu sem hafði umgengist smitaðan einstakling hér á landi og 32 ára gamla konu sem kom frá Bandaríkjunum 16. júlí sl.
Lesa nánar

22.7.2009

Átján manns hafa greinst á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v.

Síðasta sólarhringinn hafa greinst þrjú tilfelli á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1)v og hefur hún því greinst hjá samtals 18 manns frá því í maí sl. Um er að ræða 24 ára karlmann sem ekki hefur ferðast erlendis og ekki haft tengsl við ferðalanga.
Lesa nánar

21.7.2009

Fimmtán tilfelli hafa greinst á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v.

Síðasta sólarhringinn hafa greinst fjögur tilfelli á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v og eru inflúensutilfellin því orðin 15 samtals frá því í maí sl. Um er að ræða tvær konur 24 og 33 ára sem ekki hafa ferðast erlendis og virðast því hafa smitast innanlands
Lesa nánar

20.7.2009

Ellefu tilfelli hafa nú greinst á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v.

Frá því á föstudag 17.júlí 2009 hafa bæst við tvö tilfelli af nýju inflúensunni A(H1N1)v. Um er að ræða 19 ára konu annars vegar sem kom frá Mexíkó og veiktist eftir heimkomu og 35 ára konu sem kom frá Ástralíu sem einnig veiktist eftir heimkomu. Þær voru ekki með alvarleg einkenni og eru á batavegi.
Lesa nánar

17.7.2009

Í dag var tilkynnt níunda tilfellið af nýju inflúensunni A(H1N1)v (svínainflúensu).

Um er að ræða þrítugan karlmann. Hann hefur ekki ferðast erlendis nýverið. Engin tengsl við þekkt tilfelli af nýju inflúensunni. Er á batavegi.
Lesa nánar

17.7.2009

Á Íslandi hafa nú greinst átta tilfelli af nýju inflúensunni A(H1N1)v (svínainflúensu).

Síðdegis í gær, 16. júlí, greindist átta ára gömul stúlka með nýju inflúensuna. Hún kom til landsins frá Spáni 10. júlí sl. Hún veiktist þremur dögum síðar en sýni frá 14. júlí reyndist jákvætt fyrir inflúensu A(H1N1)v. Stúlkan er á batavegi.
Lesa nánar

15.7.2009

Bóluefni og lyf gegn heimsfaraldri inflúensu

Í tilefni af opinberri umræðu um inflúensuna A(H1N1), og tilheyrandi bóluefni og bólusetningu hérlendis, er ástæða til að vekja athygli á eftirfarandi til skýringar og áréttingar:
Lesa nánar

15.7.2009

Þrjú ný tilfelli inflúensu A (H1N1) greind á Íslandi

Staðfest eru þrjú ný tilfelli inflúensu A (H1N1) hérlendis og eru þau því alls orðin sjö talsins. Um er að ræða fólk á aldrinum 18-19 ára, karl og konu sem komu heim frá Ástralíu og konu sem kom frá Bandaríkjunum.
Lesa nánar

03.7.2009

Farsóttafréttir eru komnar út

Á vef Landlæknisembættisins eru komnar út Farsóttafréttir, 6. til 7. tölublað árgangsins. Farsóttafréttir eru að þessu sinni helgaðar einu efni, nýju inflúensunni A(H1N1) á Íslandi. Gerð er grein fyrir fyrstu tilfellunum sem greinst hafa í landinu og viðbragðsáætlunum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjórans.
Lesa nánar

03.7.2009

Munum eftir inflúensunni – ráðleggingar um smitvarnir

Sóttvarnalæknir hefur, í samráði við ríkislögreglustjórann almannavarnadeild, gefið út bækling með ráðleggingum til almennings um smitvarnir gegn inflúensuveirunni A(H1N1). Þessi bæklingur er önnur útgáfa bæklings sem gefinn var út fyrr í júní. Nú er áherslan á einkenni inflúensu.
Lesa nánar

Mynd með frétt
12.6.2009

Munum eftir inflúensunni – ráðleggingar til ferðalanga

Út er kominn fræðslubæklingur hjá sóttvarnalækni með ráðleggingum til ferðamanna um aðgát og varúðarráðstafanir vegna nýju inflúensunnar A(H1N1) sem nú berst um heiminn. Bæklingurinn er gefinn út í samstarfi við Almannavarnadeild ríkislögreglustjórans.
Lesa nánar

12.6.2009

Fjórða inflúensutilfellið greint, hið fyrsta sem smitast innanlands

Fjórða tilfelli inflúensu A(H1N1) hefur greinst á Íslandi. Þar á í hlut kona á miðjum aldri og allt bendir til þess að hún hafi smitast af hjónum sem komu hingað frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn og greindust bæði með veikina. Þetta síðasta tilfelli má því rekja til smits hér innanlands.
Lesa nánar

10.6.2009

Þriðja inflúensutilfellið greint á Íslandi

Þriðja tilfelli inflúensu A(H1N1) greindist á Íslandi í gærkvöld. Þar er um að ræða eiginkonu karlmannsins sem greindist með veikina í fyrradag og sagt var frá í tilkynningu sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar í gærmorgun.
Lesa nánar

09.6.2009

Annað tilfelli inflúensu A(H1N1) staðfest á Íslandi

Sextugur karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur greinst með inflúensu A(H1N1) og er það annað tilfelli veikinnar sem staðfest er hér á landi. Hann er á batavegi. Fylgst er með fjölskyldu og fleirum sem viðkomandi hefur umgengist eftir heimkomuna en smit hjá öðrum hefur ekki verið staðfest.
Lesa nánar

03.6.2009

Svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs ræddar á fundum um allt land

Fulltrúar sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hitta sóttvarnalækna, lögreglustjóra, forystumenn sveitarfélaga og heilbrigðisstarfsmenn á alls fimmtán fundum víðs vegar um landið núna í júní til að ræða svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs.
Lesa nánar

25.5.2009

Inflúensa A(H1N1) ekki greind í sýnum frá sex einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast

Niðurstöður úr alls sex sýnum, sem tekin voru til rannsóknar síðastliðinn föstudag og laugardag frá einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast af inflúensu A(H1N1), sýna að þeir eru ekki sýktir af hinni nýju inflúensu.
Lesa nánar

24.5.2009

Niðurstöður rannsókna á sýnum væntanlegar á morgun

Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á sýnum vegna gruns um sex tilfelli inflúensu A(H1N1) liggi fyrir á morgun, mánudag. Viðkomandi einstaklingar tilheyra fjölskyldu mannsins sem greindist með inflúensuna fyrir helgi. Enginn viðkomandi er alvarlega veikur.
Lesa nánar

23.5.2009

Fyrsta tilfelli inflúensu A(H1N1) greint á Íslandi

Eitt tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur verið staðfest hér á landi og grunur leikur á að fjórir til viðbótar séu smitaðir. Sýni þar að lútandi verða send til rannsóknar. Viðkomandi tilfelli eru á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi.
Lesa nánar

20.5.2009

Farsóttafréttir maímánaðar eru komnar út

Á vef Landlæknisembættisins er komið út maítölublað Farsóttafrétta. Í fréttabréfinu er samantekt um nýju inflúensuna A(H1N1) frá því fyrstu tilfelli hennar greindust fyrir tæpum mánuði til dagsins í dag.
Lesa nánar

20.5.2009

Ríflega 10 þúsund staðfest tilfelli af inflúensu A(H1N1)

Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1) alls 10.215 í morgun í 42 ríkjum í heiminum (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).
Lesa nánar

15.5.2009

Ekki varað lengur við ferðalögum til Mexíkó og dregið úr viðbúnaði í Leifsstöð

Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) alls 7.743 í morgun í 34 ríkjum í heiminum (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).
Lesa nánar

13.5.2009

Meiri smithæfni en í „venjulegri“ inflúensu

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.935 í morgun í 31 ríki í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).
Lesa nánar

11.5.2009

Rúmlega fimm þúsund staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) í heiminum

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.132 í morgun í 30 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).
Lesa nánar

08.5.2009

Staðfestum tilfellum inflúensu A (H1N1) fjölgar nú hægar en áður

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.489 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 272 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).
Lesa nánar

07.5.2009

Staðfestum inflúensutilfellum fjölgar mest í Bandaríkjunum

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.217 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 568 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).
Lesa nánar

06.5.2009

Flest staðfest inflúensutilfelli í Evrópu eru á Spáni

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 1.652 í morgun í 22 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 380 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).
Lesa nánar

05.5.2009

Flestir sem greinast með inflúensu A (H1N1) eru ungt fólk.

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 1.269 í morgun í 22 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti).
Lesa nánar

04.5.2009

Yfir 1.000 staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1)

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) - „svínainflúensunnar“ - voru í morgun alls 1.008 í nítján ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins.
Lesa nánar

01.5.2009

Staðfest 481 svínainflúensutilfelli í 11 löndum

Staðfestum tilvikum svínainflúensu í heiminum fjölgar áfram. Þau voru alls 481 í morgun, þar af 312 í Mexíkó. Alls hafa þrettán látist úr veikinni þar af tólf í Mexíkó og einn í Bandaríkjunum. Þetta eru nýjustu upplýsingar Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Lesa nánar

30.4.2009

Hvernig á að verjast svínainflúensu?

Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir árétta að andlitsgrímur fyrir hinn almenna borgara gera lítið gagn til að verjast svínainflúensu.
Lesa nánar

30.4.2009

Aukinn viðbúnaður – allt á áætlun – enginn smitaður

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin jók viðbúnaðarstig sitt í fimm í gærkvöld. Þetta þýðir meðal annars að aðildarþjóðir WHO eru beðnar um að virkja viðbúnaðaráætlanir sínar vegna svínainflúensunnar. Þessi breyting af hálfu WHO hefur engin áhrif hér á landi, enda viðbúnaðaráætlun þegar virk, og hér er enn unnið á hættustigi (stigi 4).
Lesa nánar

29.4.2009

Aðgerðir hér á landi vegna svínainflúensu og staðfest tilfelli

Fréttatilkynning frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Staðan í dag 29.4. 2009: Í gær hækkaði WHO viðbúnaðarstig sitt yfir á stig 4 og hér á landi var í kjölfarið viðbúnaðarstigið fært af óvissustigi og yfir á hættustig.
Lesa nánar

28.4.2009

Tilkynning frá sóttvarnalækni vegna svínainflúensu

Eins og áður hefur komið fram er ekki talin ástæða til að setja takmarkanir við ferðalög til útlanda á meðan ekki liggja fyrir nákvæmari upplýsingar um svínainflúensufaraldurinn í Mexíkó. Sóttvarnalænir mælist þó til að fólk ferðist ekki til Mexíkó nema brýna nauðsyn beri til.
Lesa nánar

28.4.2009

Undirbúningur vegna svínainflúensu er samkvæmt áætlun

Boðað er til blaðamannafundar í dag, þriðjudag kl. 16.00, í björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð 14. Þar mun sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra greina frá stöðunni í dag og segja frá þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til hér á landi og erlendis.
Lesa nánar

27.4.2009

Upplýsingar um svínainflúensu A(H1N1). Spurningar og svör

Hvað er svínainflúensa? Svínainflúensa er bráð sýking í öndunarvegum svína af völdum inflúensu A veiru. Dánartíðnin er lág í svínum og þau ná sér venjulega á 7–10 dögum frá upphafi veikinda.
Lesa nánar

05.9.2008

Inflúensan veturinn 2008–2009. Bólusetningar hefjast bráðlega

Senn líður að þeim tíma þegar árleg inflúensubólusetning hefst, en miðað hefur verið við októberbyrjun. Gert er ráð fyrir að bóluefnin verði komin til landsins í lok september og geta heilbrigðisstofnanir og aðrir þar til bærir aðilar pantað bóluefni hjá dreifingaraðila nú þegar.
Lesa nánar

Mynd með frétt
01.4.2008

Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu undirrituð

Föstudaginn 28. mars sl. var Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu undirrituð í Björgunarmiðstöðinni við Skógarhlíð í Reykjavík. Til að fagna þessum áfanga komu saman þeir sem unnið hafa að gerð áætlunarinnar. Við gerð áætlunarinnar störfuðu um 30 vinnuhópar að verkefnisstjórn og stýrihópi meðtöldum, eða um 100 manns.
Lesa nánar

17.1.2008

Inflúensutilfelli staðfest

Greinst hafa tvö tilfelli af inflúensu á veirufræðideild Landspítala, eitt tilfelli inflúensu B í desember og eitt af inflúensu A í janúar. Inflúensu A veiran er af H1 stofni. Endanleg greining hefur enn ekki fengist, en að öllum líkindum er þetta sami stofn (A/H1N1) og greinst hefur í Evrópu síðustu vikur.
Lesa nánar

15.1.2008

Notkun veirulyfja í heimsfaraldri inflúensu

Í janúarhefti Læknablaðsins 2008 er birt yfirlitsgrein um veirulyf gegn inflúensu og leiðbeiningar gefnar um notkun þeirra í heimsfaraldri.
Lesa nánar

21.12.2007

Tíu þúsund skammtar af bóluefni gegn fuglainflúensu (H5N1) eru nú komnir til landsins.

Sóttvarnalæknir hefur fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda fest kaup á 10.000 skömmtum af bóluefni gegn fuglainflúensu (H5N1) fyrir menn sem framleitt er af GlaxoSmithKline (GSK) og verður til taks ef veiran greinist hér á landi.
Lesa nánar

Mynd með frétt
11.12.2007

Æfing vegna heimsfaraldurs inflúensu

Í gær (10. desember 2007) var haldin æfing um viðbrögð við heimsfaraldri inflúensu í Samhæfingarstöð almannavarna við Skógarhlíð undir stjórn sóttvarnalæknis og Ríkislögreglustjóra. Tilgangur æfingarinnar var að æfa samskipti sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra við æðstu yfirstjórn landsins, sóttvarnalækna umdæma og svæða, lögreglustjóra, Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri.
Lesa nánar

28.6.2007

Skýrsla um viðbragðsáætlanir vegna heimsfaraldurs inflúensu

Stöðuskýrslu um gerð viðbragðsáætlana vegna heimsfaraldurs inflúensu var nýverið skilað til nefndar sem í sitja ráðuneytisstjórar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og dóms- og kirkjumálaráðuneytisins ásamt skrifstofustjórum og sóttvarnalækni.
Lesa nánar

29.5.2007

Kaup á árlegu inflúensubóluefni

Samningar um kaup á árlegu inflúensubóluefni voru undirritaðir 10. maí síðastliðinn af sóttvarnalækni fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda og fulltrúum GlaxoSmithKline (GSK) og Icepharma (Sanofi Pasteur MSD).
Lesa nánar

Mynd með frétt
08.5.2007

Bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu

Þann 4. maí 2007 undirritaði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra samning við GlaxoSmithKlein um kauptryggingu á 300.000 skömmtum af bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu. Samningur þessi er samhljóða samningi sem Danir hafa gert við lyfjafyrirtækið.
Lesa nánar

13.11.2006

Gagnsemi inflúensubólusetningar

Í nýlegri frétt Morgunblaðsins (10. nóvember 2006) var haft eftir Tim Jefferson sem starfar hjá Cochrane-stofnuninni á Ítalíu að inflúensubólusetning hefði lítil sem engin áhrif hjá öldruðum.
Lesa nánar

26.9.2006

Bólusetning gegn árlegri inflúensu

Sóttvarnalæknir hefur með dreifibréfi sent tilkynningu til lækna og hjúkrunarfræðinga um bólusetningar gegn inflúensu á haustinu 2006. Eins og endranær mælir sóttvarnalæknir með því að áhættuhópar njóti forgangs.
Lesa nánar

07.4.2006

Leiðbeiningar til starfsmanna á alifuglabúum vegna skæðrar fuglaflensu

Vakin er athygli á nýjum leiðbeiningum frá sóttvarnalækni, Landbúnaðarstofnun, Umhverfisstofnun og Vinnueftirlitinu til starfsmanna á alifuglabúum og þeirra sem sjá um förgun fugla og annarra dýra sem sýkt eru af skæðri fuglainflúensu.
Lesa nánar

03.3.2006

Leiðbeiningar til almennings og eigenda alifugla vegna fuglainflúensu A/H5N1

Sóttvarnalæknir hefur í samvinnu við Landbúnaðarstofnun og Umhverfisstofnun sent frá sér meðfylgjandi ráðleggingar varðandi fuglainflúensu. Ráðleggingar þessar verða uppfærðar þegar nýjar upplýsingar berast. Ráðleggingunum er beint annars vegar til almennings og hins vegar til eigenda alifugla.
Lesa nánar

20.2.2006

Mótefni gegn skaðlausri fuglaflensuveiru hafa greinst í tveimur sýnum úr hænum

Mótefni hafa greinst gegn fuglaflensuveiru í tveimur sýnum sem tekin voru úr hænum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík. Samtals voru tekin 10 sýni úr hænum þar.
Lesa nánar

17.2.2006

Spurningar og svör um fuglaflensu

Er óhætt að ferðast til landa þar sem fuglaflensa hefur verið staðfest? Í hvaða löndum hefur fuglaflensa komið upp?
Lesa nánar

23.1.2006

Veirulyf gegn inflúensu

Töluvert hefur borist af fyrirspurnum frá almenningi um hvort ráðlegt sé að eiga birgðir af veirulyfjum (Tamiflu eða Relenza) í heimahúsum til eigin nota. Sóttvarnalæknir mælir ekki með því að almenningur verði sér út um slíkar birgðir.
Lesa nánar

09.1.2006

Ráðleggingar til ferðamanna

Ekki er mælt með neinum ferðatakmörkunum eða bólusetningum ferðamanna vegna ferða til landa þar sem fuglainflúensa (H5N1) hefur komið upp.
Lesa nánar

13.10.2005

Fuglainflúensa greinist í Tyrklandi. Ráðleggingar til ferðamanna.

Vegna fjölda fyrirspurna skal tekið fram að ekki er mælt með neinum ferðatakmörkunum eða bólusetningum vegna fuglainflúensu sem geisað hefur í Asíuríkjunum
Lesa nánar

23.12.2004

Inflúensan minnir á sig

Fyrsta inflúensutilfellið af A stofni greindist í Reykjavík þann 16. desember sl.
Lesa nánar

06.10.2004

Innkallað inflúensubóluefni ekki á markaði á Íslandi

Bóluefnið Fluvirin frá Evans Vaccines Limited hefur verið innkallað af markaði vegna ófullnægjandi aðstæðna í framleiðslu.
Lesa nánar

27.9.2004

Varnir gegn inflúensu

Enda þótt ekki hafi enn spurst til hinnar árlegu inflúensu er sá tími að hefjast sem hennar er að vænta en það venjulega tíminn frá nóvember til mars á hverju ári.
Lesa nánar




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli