Starfsleyfi
Starfsréttindi heilbrigðisstétta
Heilbrigðisstéttir njóta lögverndaðs starfsheitis skv. lögum nr. 24/1985 (með síðari tíma breytingum, síðast með lögum nr. 12/2008 er tóku gildi 1. apríl 2008). Frá og með 1. apríl 2008 þarf starfsleyfi landlæknis til að starfa hér á landi sem starfsmaður í heilbrigðisstétt. Nánar er kveðið á um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfa í lögum og reglugerðum um starfsréttindi heilbrigðisstétta.
Eyðublöð fyrir umsóknir um starfsleyfi heilbrigðisstétta, sérfræðingsleyfi og vottorð um starfsleyfi er hægt að nálgast á vefsíðum fyrir viðkomandi heilbrigðisstéttir hér fyrir neðan. Þar eru einnig leiðbeiningar og upplýsingar um gögn sem þurfa að fylgja umsóknum, eftir því sem við á um hverja stétt.
Þeir sem hyggjast hefja rekstur í heilbrigðisþjónustu þurfa að tilkynna það til Embættis landlæknis á sérstöku eyðublaði. Tilkynning um rekstur.
ATH. Útfylltar umsóknir um starfsleyfi heilbrigðisstétta þarf að undirrita og senda Embætti landlæknis ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum.
Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Embætti landlæknis, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni eða hjá samsvarandi aðilum erlendis.
Umsækjendur með próf frá innlendum háskólum þurfa einnig að skila inn forsíðu prófskírteinis þar sem fram kemur undirritun deildarforseta.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
Nánari upplýsingar hjá Embætti landlæknis veitir Lisa Kjartansdóttir.
_______________________________________________________________________________
Heilbrigðisstéttir
Síðast breytt/ uppfært 4. apríl 2012