Um embættið

 Austurströnd 5, Seltjarnarnesi

Landlæknisembættið er til húsa að 
Austurströnd 5, Seltjarnarnesi.

Markmið Landlæknisembættisins er samkvæmt lögum að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að heilbrigði landsmanna.

Meginhlutverk embættisins er þríþætt, ráðgjöf, eftirlit og upplýsingasöfnun.

Lagaákvæði um hlutverk Landlæknisembættisins er að finna í lögum um landlækni en einnig í sóttvarnalögum og í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.

Skv. lögum um landlækni nr. 41/2007 eru hlutverk embættisins m.a. eftirfarandi:

  • Að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, heilbrigðisstarfsfólki og almenningi ráðgjöf um heilbrigðismál.
  • Að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsfólki.
  • Að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna.
  • Að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu.
  • Að fylgjast með heilbrigði landsmanna.
  • Að vinna að gæðaþróun innan heilbrigðisþjónustu.
  • Að sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu.
  • Að stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma.
  • Að stuðla að rannsóknum á sviði heilbrigðisþjónustu.

 Lesa nánar: Dreifibréf nr. 3/2008. Lög um landlækni nr. 41/2007.

Samkvæmt sóttvarnalögum nr. 19/1997  starfar sóttvarnalæknir við embættið. Hann ber ábyrgð á framkvæmd sóttvarna svo og á almennum og opinberum sóttvarnaráðstöfunum. Verksvið sóttvarnalæknis er aðallega eftirfarandi:

  • Að skipuleggja og samræma sóttvarnir og ónæmisaðgerðir um land allt, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum.
  • Að halda smitsjúkdómaskrá til að fylgjast með útbreiðslu smitsjúkdóma.
  • Að halda skrá um notkun manna á sýklalyfjum sem valdið geta ónæmi sýkla gegn sýklalyfjum.
  • Að koma á framfæri upplýsingum um útbreiðslu smitsjúkdóma, innanlands sem utan, til lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna.
  • Að vera læknum og öðrum, sem við sóttvarnir fást, til ráðgjafar.
  • Að hafa umsjón með forvörnum gegn smitsjúkdómum, m.a. með upplýsingum og fræðslu til almennings.


Uppfært 26. maí 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli