Almannavarnir
Hlutverk almannavarnadeildar Ríkislögreglustjórans er að skipuleggja og framkvæma ráðstafanir til að tryggja að aðgerðir og úrræði séu til staðar þegar hættu- og neyðarástand skapast í samfélaginu.
Hlutverk Landlæknisembættisins
Samkvæmt lögum nr. 82/2008 um almannavarnir fer landlæknir í umboði heilbrigðisráðherra með stjórn þeirra þátta almannavarna er varða málefni heilbrigðisstofnana, læknismeðferð og hjúkrun á sjúkum og særðum og á hann sæti í almannavarna- og öryggismálaráði. Stjórn sóttvarna er í höndum sóttvarnalæknis, sem einnig á sæti í ráðinu.
Landlæknisembættið hefur með höndum forvarnir, leiðbeiningar og almannafræðslu er varða málefni sem ógna heilsu manna.
Forráðamönnum heilbrigðisstofnana ber samkvæmt tilmælum landlæknis að undirbúa og framkvæma ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að geta veitt sjúkum og særðum móttöku og meðferð á hættutímum. Þeim ber og að taka þátt í undirbúningi að stofnun og rekstri varasjúkrahúsa.
Landlæknisembættið sér um að ævinlega séu til í landinu lyfjabirgðir sem eru tiltækar við hópslys eða aðra vá. Embættið og almannavarnir Ríkislögreglustjóra gefa út spjöld til að greina slasaða og látna á vettvangi, svo kölluð Mettag-spjöld.
Samhæfing aðgerða í hættu- og neyðarástandi er hjá Samhæfingarstöð almannavarna.
Uppfært 26. maí 2010