Fagráð Landlæknisembættisins


Landlæknir setti í ársbyrjun árið 2000 á stofn fagráð til að vera Landlæknisembættinu til ráðgjafar um áherslur í forvarnarstarfi, heilsuvernd og heilsueflingu á ýmsum sviðum heilsugæslu. Upphaflega voru stofnuð fagráð um geðvernd, heilsueflingu, heilsuvernd aldraðra, heilsugæslu í skólum, heyrnarvernd, mæðravernd, sjónvernd, ung- og smábarnavernd og vinnuvernd, en haustið 2006 bættist við fagráð um sjúklingaöryggi.

Fagráðin hafa starfað með mismikilli virkni á undanförnum árum. Á árinu 2008 var starfsemi flestra þeirra lögð niður en eftir standa þrjú fagráð sem enn eru starfandi. Þau eru:


Fagráðunum er ætlað að vera Landlæknisembættinu til ráðgjafar varðandi þróun á viðkomandi sérsviðum. Í því felst m.a. gerð klínískra leiðbeininga, kynningar- og fræðslustarf fyrir fagfólk og gerð fræðsluefnis fyrir almenning. Ætlunin er að fagráðin geti í ákveðnum tilvikum kallað til sérfræðinga vegna sértækra verkefna eftir því sem við á.

Auk ofangreindra fagráða eru starfandi á vegum embættisins fleiri ráð með sambærilegt ráðgjafarhlutverk:

Auk fagráða Landlæknisembættisins eru starfandi sérfræðiráð á ýmsum sviðum heilsuverndar og forvarna hjá Lýðheilsustöð. Landlæknir á sæti í landsnefnd um lýðheilsu hjá Lýðheilsustöð, en auk þess eiga fulltrúar embættisins sæti í sérfræðiráðunum.

Uppfært 26. maí 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli