Starfsmannastefna

Framkvæmdastjórn Landlæknisembættisins samþykkti starfsmannastefnu fyrir embættið vorið 2002. Starfsmannastefnan er svohljóðandi: 

Starfsmannastefna Landlæknisembættisins byggir að hluta til á skráðum lögum, reglum og samningum um tengsl starfsmanna og vinnustaðar, s.s. lögum um heilbrigðisþjónustu, reglugerð um Landlæknisembættið, lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, stjórnsýslulögum, jafnréttislögum, lögum um kjarasamninga og kjarasamningum og á öryggishandbók embættisins. Jafnframt mótast starfsmannastefnan af þeim gagnkvæmu væntingum sem embættið gerir til starfsmanna sinna og starfsmennirnir gera til embættisins sem vinnustaðar.

Markmið
Markmið starfsmannastefnu Landlæknisembættisins er að stuðla að því að embættið gegni hlutverki sínu, s.s. kveðið er á um í 3. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 97 frá 1990 og uppfylli réttmætar væntingar sem gerðar eru til embættisins og starfsmanna þess. Til þess að svo megi verða þarf Landlæknisembættið að hafa á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki sem helgar starfskrafta sína embættinu og þeirri þjónustu-, ráðgjafar-, þróunar-, rannsóknar- og fræðslustarfsemi sem þar fer fram og bregst við síbreytilegum þörfum landsmanna og þjóðfélags.

Starfsmannastefnunni er ætlað að vera til hvatningar og upplýsingar fyrir alla starfsmenn embættisins. Hún lýsir vilja embættisins til að vera góður vinnustaður þar sem gott starf er unnið af áhugasömu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. Starfsmannastefnunni er ætlað að tryggja starfsmönnum sem best starfsskilyrði og möguleika til að þroskast í starfi.

  • Lögð er áhersla á að ráða til starfa hæfasta starfsfólkið sem völ er á hverju sinni.
  • Gildandi kjarasamningum er fylgt og ákvæði þeirra túlkuð með hliðsjón af hagsmunum embættisins og starfsfólksins.
  • Leitast er við að gefa starfsfólki tækifæri á starfsþróun með markvissri fræðslu og þjálfun.
  • Samskipti starfsfólks innan embættisins og utan skulu grundvallast á siðfágun, trúnaði og virðingu fyrir tilvist og skoðunum annarra.
  • Leitast er við að upplýsingastreymi sé markvisst og að starfsfólk þekki réttar boðleiðir.
  • Stuðlað er að því að umhverfi og aðstæður tryggi öryggi og vellíðan starfsfólks við vinnu.
  • Jafnrétti er virt.
  • Starfsfólk skal sinna störfum sínum af heiðarleika, vandvirkni og ábyrgð.

     


Uppfært 26. maí 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli