Hjúkrunarráð
Hjúkrunarráð er skipað samkvæmt 2. grein hjúkrunarlaga nr. 8/1974. Ráðið hefur m.a. það hlutverk að veita umsagnir um sérfræðileyfi hjúkrunarfræðinga og meta hæfni erlendra hjúkrunarfræðinga sem sækja um hjúkrunarleyfi hér á landi.
Frá 19. maí 2010 var hjúkrunarráð skipað eftirtöldum hjúkrunarfræðingum:
- Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs Landspítala, formaður (tilnefnd af heilbrigðisráðuneytinu)
- til vara: Ásgeir Valur Snorrason, sérfræðingur í svæfingahjúkrun, varaformaður
- Kristín Björnsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands (tilnefnd af menntamálaráðuneytinu)
- til vara: Elísabet Hjörleifsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri
- Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (tilnefnd af Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga)
- til vara: Hildur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítala.
Uppfært 26. maí 2010